Faldur ex Faldur ÞH 153. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hér kemur Faldur til hafnar á Húsavík í dag eftir að hafa siglt með ferðamenn á hvalaslóðir Skjálfandaflóa. Faldur hét upphaflega Votaberg ÞH 153 og var smíðaður hjá Skipaviðgerðum hf. í Vestmannaeyjum. Hér má lesa nánar um bátinn sem gerður er út af Gentle Giants. Með … Halda áfram að lesa Faldur
Author: Hafþór Hreiðarsson
Snæfell á Eyjafirði
2212. Snæfell EA 310 ex Akraberg FD 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Fyrstu myndirnar af Snæfellinu í gær tók ég á Hjalteyri og hér birtast nokkrar þeirra en eins og segir í fyrri færslu kom skipið til heimahafnar á Akureyri í gær. 2212. Snæfell EA 310 ex Akraberg FD 10. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2022. Með … Halda áfram að lesa Snæfell á Eyjafirði
Snæfell EA 310
2212. Snæfell EA 310 ex Akraberg FD 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Frystitogarinn Snæfell EA 310 kom til heimahafnar á Akureyri í dag eftir siglingu frá Danmörku þar sem skipið var í slipp. Eins og kom fram í fréttum í vor keypti Samherji skipið frá Færeyjum í vor og mun það veiða grálúðu í íslensku … Halda áfram að lesa Snæfell EA 310
Huginn VE 55 á makrílmiðunum
2411. Huginn VE 55. Ljósmynd Sigdór Jósefsson 2022. Þessi mynd var að berast af makrílmiðunum og sýnir Huginn VE 55 sem var að fá gefins makríl hjá Gullbergi VE 292. Sigdór Jósefsson tók myndirnar en um skipin má lesa hér og hér. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri … Halda áfram að lesa Huginn VE 55 á makrílmiðunum
Knörrinn
306. Knörrinn ex Hrönn EA 258. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Knörrinn kom úr hvalaskoðun nú síðdegis og því var um að gera að smella af henni mynd eða tveim. Knörrinn var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1963 og hét upphaflega Auðunn EA 157 með heimahöfn í Hrísey. Eftir að hafa verið gerður út til … Halda áfram að lesa Knörrinn
Ásdís ÓF 9
2596. Ásdís ÓF 9 ex Ádís RE 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Ásdís ÓF 9 kemur hér að landi á Siglufirði en Gunnar Gunnarsson ehf. gerir hana út til handfæraveiða. Ásdís hét upphaflega Björn SH og var smíðaður hjá Bátahöllinni á Hellisandi árið 2003. Árið 2009 fær hann Ásdísarnafnið og er RE 15 en samkvæmt … Halda áfram að lesa Ásdís ÓF 9
Azamara Pursuit
IMO: 9210220. Azamara Pursuit, Garðar og Amma Sigga. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Skemmtiferðaskipið Azamara Pursuit kom til Húsavíkur snemma í morgun og lét síðan úr höfn skömmu eftir hádegi. Skipið var smíðað í Frakklandi árið 2001 og siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Valletta. Það er 30,277 GT að stærð og lengd þess er 181 … Halda áfram að lesa Azamara Pursuit
Höfrungur ÞH 22
5440. Höfrungur ÞH 22 ex Höfrungur EA 303. Ljósmynd Pétur Jónasson. Jóhannes Straumland siglir hér Höfrungi ÞH 22 um höfnina á Húsavík og Pétur Jónasson myndar bátinn sem keyptur var til Húsavíkur árið 1974. Höfrungur var upphaflega EA 303 og smíðaður árið 1972 af Baldri Halldórssyni skipasmið á Hlíðarenda við Akureyri. Árið 1982 fékk báturinn … Halda áfram að lesa Höfrungur ÞH 22
Akurey RE 6
233. Akurey RE 6. Ljósmynd Pétur Jónasson. Akurey RE 6 kemur hér til Húsavíkur á síldarárunum og afli greinilega góður. Akurey var smíðuð í Noregi fyrir Hraðfrystistöðina í Reykjavík og kom ný til landsins í júní árið 1964. Smíðin fór fram hjá Ankerlökken Verft A/S í Florø en báturinn var smíðaður eftir teikningu Hjálmars R. … Halda áfram að lesa Akurey RE 6
Svanur ÞH 100
992. Svanur ÞH 100 ex Benedikt Sæmundsson GK 28. Ljósmynd Pétur Jónasson. Svanur ÞH 100 var gerður út af Útgerðarfélaginu Vísir hf. sem keypti bátinn til Húsavíkur árið 1969. Upphaflega hét báturinn Benedikt Sæmundsson GK 28 og var smíðaður í Bátalóni hf. í Hafnarfirði árið 1965. Árið 1977 kom til eigendaskipta á bátnum er Útgerðarfélagið … Halda áfram að lesa Svanur ÞH 100









