Sextugur Knörrinn kemur að

306. Knörrinn ex Hrönn EA 258. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Körrinn er byrjaður siglingar með ferðamenn þetta árið en myndin var tekin í dag þegar hann kom úr hvalaskoðunarferð á Skjálfanda. Þann 9. mars sl. voru 60 ár síðan báturinn var sjósettur hjá Slippstöðinni á Akureyri en hann hét upphaflega Auðunn EA 157. Hann var smíðaður … Halda áfram að lesa Sextugur Knörrinn kemur að →

Seaborn Ovation á Skjálfanda

IMO 9764958. Seaborn Ovation . Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Skemmtiferðaskipið Seaburn Ovation kom snemma í morgun inn á Skjálfanda og lagðist við ankeri skammt undan Húsavík þangað sem farþegar skipsins voru ferjaðir með skipsbátum. Skipið, sem var smíðað árið 2018 í Genóa á Ítalíu, hélt síðan áfram ferð sinni síðdegis. Seaborn Ovation er 41,865 GT … Halda áfram að lesa Seaborn Ovation á Skjálfanda →

Ný Cleopatra 36 til Tana í Noregi

Barent Gadus TF-28_TN. Ljósmynd Trefjar 2023. Piera Gaup útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Piera verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem ber nafnið Barent Gadus.  Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn. Hann leysir af hólmi eldri Cleopatra 36 bát sem útgerðin hefur … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 36 til Tana í Noregi →

Spitsbergen kom til Húsavíkur í morgun

IMO 9434060. Spitsbergen. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Farþegaskipið Spitsbergen kom ti Húsavíkur í morgun en það er gert út af Hurtigruten í Noregi. Spitsbergen var smíðað árið 2009 hjá skipasmíðastöðinni Estaleiro Navais de Viana do Castelo í Viana do Castelo í Portúgal. Skipið var allt endurnýjað árið 2016 en það tekur 335 farþega. Spitzbergen er … Halda áfram að lesa Spitsbergen kom til Húsavíkur í morgun →

Seaventure kom til Húsavíkur

IMO: 8907424. Seaventure ex Bremen. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Farþegaskipið Seaventure kom til Húsavíkur skömmu fyrir hádegi í dag og mun vera í höfn þangað til síðdegis á morgun. Seaventure hét áður Bremen og var smíðað í Japan árið 1990. Það hét Frontier Spirir fyrstu þrjú árin en síðan Bremen til ársins 2020. Það mælist 6,752 … Halda áfram að lesa Seaventure kom til Húsavíkur →

Mississippiborg á Skjálfanda

IMO: 9207508. Mississippiborg ex MSC Poland. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hollenska flutningaskipið Mississippiborg kom til Húsavíkur í morgunsárið en skipið er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Skipið, sem var smíða árið 2000, er 6,540 GT að stærð. Lengd þess er 133.55 metrar og breiddin 16,5 metrar. Heimahöfn Mississippiborg er Delfzijl. IMO: 9207508. Mississippiborg ex MSC Poland. … Halda áfram að lesa Mississippiborg á Skjálfanda →

Vísir SH 77

1926. Vísir SH 77 ex Garpur SH 266. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Vísir SH 77 er hér í Hafnarfjarðarhöfn sumarið 2003 en báturinn er úr smiðju Baldurs Halldórssonar á Hlíðarenda við Akureyri. Báturinn, sem er af Starletgerð og skrokkur hans innfluttur, var smíðaður fyrir Sigurð Jónsson í Hafnarfirði árið 1988. Hann var lengdur árið 1995 … Halda áfram að lesa Vísir SH 77 →