
Gerpir NK 111 er hér í slipp á Akureyri en báturinn var seldur til Húsavíkur á dögunum.
Það segir frá sölunni á vef Austurfrétta en seljandi er SÚN í Neskaupstað sem eignaðist bátinn árið 2003.
Hann var í fyrstu nýttur til að þjónusta þorskeldi á vegum Síldarvinnslunnar en síðar var ákveðið að breyta honum fyrir farþegasiglingar og hlaut hann þá nafnið Gerpir NK. Því var lokið árið 2014 og hafði hann þá eftir það leyfi til að sigla með 45 farþega.
Upphaflega hét báturinn Aldan RE 327 og var smíðuð hjá Básum h/f í Hafnarfirði árið 1976.
Báturinn var smíðaður fyrir Guðmund J. Magnússon í Reykjavík sem jafnframt var skipstjóri á bátnum.
Aldan RE 327 mældist 26 brl. að stærð og var nokkru stærri en fyrri bátar sem Básar h/f hafði smíðað, s.s Viðar ÞH 17, Haftindur HF 123 og Seifur BA 123.
Upphaflega var í bátnum 176 hestafla GM aðalvél en 1983 var sett í hann 230 hestafla vél sömu tegundar.
Í lok árs 1981 var Aldan RE 327 seld til Vopnafjarðar þar sem hún fékk nafnið Þerna NS 113. Haustið 1983 var Þerna NS 113 seld suður í Garð þar sem hún fékk nafnið Sigurvin GK 51.
Frá árinu 1988 og til ársins 1996 hét hann Seifur NS 123, Seifur NS 923, Kambavík SU 24, Haförn HU 4 og Harpa GK 111.
Árið 1996 fékk hann nafnið Jón Björn NK 111.
Árið 2004 var Jón Björn NK 111 kominn í eigu Samvinnufélags útgerðarmanna Neskaupstað og fékk síðar nafnið Gerpir NK 111 sem hann hefur borið fram á þennan dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution