Bátar við bryggju á Húsavík Ljósmynd Pétur Jónasson. Á þessari mynd frá því um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar má m.a sjá síldarbáta við bryggju á Húsavík. Álít að myndin sé tekin ca. 1965. Þetta eru Akurey RE 6, Helgi Flóventsson ÞH 77 og Sigurður Bjarnason EA 450. Aftan við þá er Eldborg GK 13 … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju á Húsavík
Author: Hafþór Hreiðarsson
Nýr Indriði Kristins frá Trefjum
3007. Indriði Kristins BA 751. Ljósmynd Alfons Finnsson 2022. Útgerðarfélagið Þórsberg ehf. á Tálknafirði fékk á dögunum afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 40BB beitningavélarbáta frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Nýi báturinn heitir Indriði Kristins BA 751 og er hannaður í samstarfi við Ráðgarð ehf. Báturinn er 12,5 metrar á lengd, 6,5metra breiður og mælist 30 brúttótonn. … Halda áfram að lesa Nýr Indriði Kristins frá Trefjum
Ásgrímur Halldórsson SF 250
2780. Ásgrímur Halldórsson SF 250 ex Lunar Bow. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2022. Ásgrímur Halldórsson SF 250 er hér að makrílveiðum á dögunum en það er Skinney-Þinganes hf. sem gerir hann út. Ásgrímur Hallórsson SF 250 var smíðaður hjá Simek skipamíðastöðinni í Noregi árið 2000 fyrir Lunar Fishing í Skotlandi og hlaut þá nafnið Lunar Bow. … Halda áfram að lesa Ásgrímur Halldórsson SF 250
Þegar Sæborgin kom ný
1475. Sæborg ÞH 55. Ljósmynd Pétur Jónasson 1977. Pétur Jónasson ljósmyndari á Húsavík tók þessar myndir þegar Sæborg ÞH 55 kom ný til Húsavíkur. Það var að ég held í byrjun marsmánaðar 1977, frekar en í lok febrúarmánaðar, sem hún sigldi fánum prýdd inn í höfnina og vel var tekið á móti henni. Fram á … Halda áfram að lesa Þegar Sæborgin kom ný
Háey I byrjuð að róa eftir sumarfrí
Unnið að lönfun úr Háey I á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Línubáturinn Háey I ÞH 295 hefur hafið róðra eftir sumarfrí og landað á Húsavík. Það er GPG Seafood sem gerir bátinn út en hann hóf veiðar í lok síðasta árs. Hér að neðan eru myndir af bátnum koma að landi í … Halda áfram að lesa Háey I byrjuð að róa eftir sumarfrí
Snæfell mun aðallega veiða grálúðu – og karfa
2212. Snæfell EA 310 ex Akraberg FD 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Eins og áður hefur komið fram á síðunni kom Snæfell EA 310, frystitogari Samherja, kom til Akureyrar sl. laugardag. Samherji keypti skipið af Framherja í Færeyjum á árinu. Á heimasíðu fyrirtækisins segir: Ýmsar endurbætur voru gerðar á skipinu í kjölfar kaupanna, sem aðallega … Halda áfram að lesa Snæfell mun aðallega veiða grálúðu – og karfa
Börkur að makrílveiðum
2983. Börkur NK 122. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2022. Uppsjávarveiðiskipið Börkur NK 122 er hér að makrílveiðum í Síldarsmugunni en myndina tók Hólmgeir Austfjörð um helgina. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar sagði í gær: Hluti makrílflotans íslenska er nú að veiðum í íslenskum sjó, veiðin hefur verið misjöfn á milli skipa. Fiskurinn sem er að fást er stór … Halda áfram að lesa Börkur að makrílveiðum
Zijlborg kom til Húsavíkur í kvöld
IMO 9229075. Zijlborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Zijlborg kom til Húsavíkur í kvöld eftir rúmlega fjögurra sólarhringa siglingu frá Hollandi. Skipið lagðist að Bökugarðinum hvar skipað verður upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka. Zijlborg siglir undir hollenskum flaggi með heimahöfn í Delfzijl. Skipið er 4,938 GT að stærð og var smíðað árið 2001. … Halda áfram að lesa Zijlborg kom til Húsavíkur í kvöld
Eyfirðingur EA 91
7666. Eyfirðingur EA 91 ex Gletta NS 199. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Eyfirðingur EA 91 hét áður Gletta NS 199 og var smíðaður hjá Seiglu ehf. á Akureyri árið 2010. Gletta NS 199 var gerð út frá Borgarfirði eystri til ársins 2016 er báturinn var seldur til Noregs. Hann var síðan keyptur aftur til landsins … Halda áfram að lesa Eyfirðingur EA 91
Bára ÞH 7
1300. Bára ÞH 7. Ljósmynd Pétur Jónasson. Bára ÞH 7 var smíðuð af Herði Björnssyni á Borgarfirði eystra árið 1973 fyrir Jón B. Gunnarsson og Kristinn Lúðvíksson á Húsavík. Bára var smíðuð úr furu og eik og mælist 7,51 brl. að stærð og gerðu Nonni Begg og Kiddi Lúlla Báru út til ársins 1998 að … Halda áfram að lesa Bára ÞH 7









