
Farþegaskipið Hebridean Sky kom til Húsavíkur snemma í morgun og lagðist að Þvergarðinum.
Skipið, sem er í eigu Noble Caledonia, var smíðað árið 1991 í skipasmíðastöðinni Nuovi Cantieri Apuania á Ítalíu. Það er svokallað leiðangursskip og tekur 120 farþega.
Hebridean Sky er 4,200 GT að stærð, lengd þess er 90,6 metrar að lengd og breiddin 15, 3 metrar.
Skipið siglir undir fána Bahamas og er með heimahöfn í Nassau.
Systurskip þess, Island Sky, sem er í eigu sömu útgerðar kom hingað til Húsavíkur í fyrra.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution