Tveir nýir frá Trefjum

Ørsvåg III N-94-V - Ørsvåg II N-93-V. Ljósmynd Magnús Jónsson 2022. Hér kemur myndasyrpa af tveim Cleopatra 33 bátum frá Trefjum sem fara til Noregs innan skamms og verður heimahöfn þeirra Svolvær. Myndirnar tók Maggi Jóns í Hafnarfirði og þær tala sínu máli þangað til nánari fréttir af bátunum koma frá Trefjum. Ørsvåg III N-94-V … Halda áfram að lesa Tveir nýir frá Trefjum

Siglt heim í jólafrí

1530. Sigurbjörg ÓF 1 - 1270. Mánaberg ÓF 42. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016. Á þessari mynd má sjá frystitogarana Sigurbjörgu ÓF 1 (nær) og Mánaberg ÓF 42 á siglingu frá Siglufirði til Ólafsfjarðar. Myndin var tekin 16. desember árið 2016 og togararnir nýbúnir að landa á Siglufirði og jólafríið framundan í heimahöfn. Þetta voru síðustu … Halda áfram að lesa Siglt heim í jólafrí

Óskar RE 157

962. Óskar RE 157 ex Óskar ÞH 380. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2010. Á þessari mynd Tryggva Sigurðssonar gefur að líta Óskar RE 157 í sinni síðustu siglingu en áfangastaðurinn var Ghent í Belgíu en þar var báturinn rifinn niður í brotajárn. Bátnum hefur verið gerð ágætis skil á síðunni en upphaflega, og lengst af, hét … Halda áfram að lesa Óskar RE 157

Jökull landar á Húsavík í dag

2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Jökull ÞH 299 kom til löndunar á Húsavík í morgun en hann hefur verið á línu síðustu mánuði en hann er ýmist gerður út til línu- eða netaveiða. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er … Halda áfram að lesa Jökull landar á Húsavík í dag

Skeiðfaxi

1483. Skeiðfaxi lætur úr höfn á Akranesi. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sementsflutningaskipið Skeiðfaxi var smíðaður á Akranesi árið 1977 og var 419 brl. að stærð, búinn 500 hestafla Caterpillar aðalvél. Sementsflutningaskipið var smíðað í skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts hvar það var síðan rifið í brotajárn árið 2019. Skeiðfaxa hafði verið lagt árið 2013. Á vef Skagafrétta … Halda áfram að lesa Skeiðfaxi

Sigurður VE 15

183. Sigurður VE 15 ex Sigurður RE 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson Það er við hæfi að birta mynd af aflaskipinu Sigurði VE 15 en útför Kristbjörns Árnasonar, Bóba, skipstjóra á Sigurði fór fram frá Húsavíkurkirkju í dag. Bóbi lést þann 5. desember sl. á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík en hann var fæddur á Húsavík 18. … Halda áfram að lesa Sigurður VE 15

Von ÞH 54

1432. Von ÞH 54 ex Vilborg ÞH 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Von ÞH 54 kemur hér til hafnar á Húsavík úr grásleppuróðri í aprílmánuði árið 2004. Sigurður skipstjóri í brúnni en hásetarnir Matti í Strandbergi og Gestur heitinn í Jörva við lúkarskappann. Von var smíðuð í Neskaupstað árið 1975 og ber nafnið Iða ÞH … Halda áfram að lesa Von ÞH 54

Steinunn kom að landi í dag

2966. Steinunn SF 10. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2022. Steinunn SF 10 kom að landi á Hornafirði í hádeginu dag og tók Sigurður Davíðsson þessar myndir. Afli veiðferðarinnar var í 210 körum en Steinunn á eftir eina veiðiferð fyrir jólafrí. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking … Halda áfram að lesa Steinunn kom að landi í dag