Ágúst Guðmundsson GK 95

262. Ágúst Guðmundsson GK 95 ex Klængur ÁR 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ágúst Guðmundsson GK 95 kemur hér að landi í Grindavík um árið en hann var heimahöfn í Vogum á Vatnsleysuströnd.  Upphaflega hét báturinn Viðey RE 12 og var smíðuð fyrir Hraðfrystistöðina í Reykjavík. Smíðin fór fram í Noregi og kom báturinn í flotann … Halda áfram að lesa Ágúst Guðmundsson GK 95

Stapafell

1545. Stapafell. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Olíuskipið Stapafell kemur hér til Húsavíkur um árið, myndi halda 1999. Stapafell var smíðað fyrir SÍS og Olíufélagið hf. í Þýskalandi árið 1979 og var 1532 brl. að stærð. Heimahöfn þess var Keflavík. Stapafell var selt úr landi árið 2001 en þá var það í eigu Olíudreifingar ehf. í Reykjavík … Halda áfram að lesa Stapafell

Brynjólfur farinn í pottinn

1752. Brynjólfur VE 3 ex Flatey ÞH 383. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2022. Brynjólfur VE 3 er nú kominn á endastöð í Belgíu þar sem hann verður rifinn í brotajárn. Tryggvi Sigurðsson tók þessa mynd á dögunum þegar Brynjólfur lét úr höfn í Vestmannaeyjum í síðasta skipti. Hér má skoða fleiri myndir af Brynjólfi. Upphaflega hét … Halda áfram að lesa Brynjólfur farinn í pottinn

Skálafell ÁR 50

100. Skálafell ÁR 50 ex Haförn SK 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skálafell ÁR 50 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn um árið en upphaflega hét báturinn Hoffell SU 80.  Báturinn var smíðaður fyrir Fáskrúðsfirðinga árið 1959 í Noregi. Síðar hét hann Fagurey SH 237, Jórunn ÁR 237, Jón Jónsson SH 187, Haförn ÁR 115, Haförn … Halda áfram að lesa Skálafell ÁR 50

Vonin KE 10 á Húsavík

1631. Vonin KE 10 ex Lundaberg AK 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Vonin frá Keflavík er á Húsavík þessa dagana en Köfunarþjónusta Sigurðar er að vinna við dráttarbrautina í Húsavíkurslipp. Vonin hét upphaflega Fálkinn NS 325 og var smíðaður í Bátalóni árið 1982 fyrir Bakkfirðinga. Með því að smella á myndina er hægt að skoða … Halda áfram að lesa Vonin KE 10 á Húsavík

Rauðinúpur ÞH 180

1280. Rauðinúpur ÞH 160. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Skuttogarinn Rauðinúpur ÞH 160 kemur hér til hafnar á Raufarhöfn um árið en myndina tók Hreiðar Olgeirsson, þá skipstjóri á Kristbjörgu ÞH 44. Rauðinúpur var smíðaður í Japan árið 1973 og kom til heimahafnar á Raufarhöfn 5. apríl það ár. Hann hét alla tíð Rauðinúpur og heimhöfnin ávallt … Halda áfram að lesa Rauðinúpur ÞH 180

Fri Ocean við Bökugarðinn

IMO 9195690. Fri Ocean ex Vera. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Fri Ocean kom til Húsavíkur í vikunni og lagðist að við Bökugarðinn hvar skipað var upp hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka. Fri OCean var smíðað í Hollandi árið 2000 og hét Vera fysrtu sex árin en skipið siglir undir fána Bahamas með heimahöfn í … Halda áfram að lesa Fri Ocean við Bökugarðinn