2390. Björn Jónsson ÞH 345 ex Jói Berg GK 33. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Björn Jónsson ÞH 345 kemur hér að bryggju á Raufarhöfn vorið 2007, úr grásleppuróðri. Báturinn var gerður út af Útgerðarfélaginu Röðli ehf. á Raufarhöfn. Báturinn var smíðaður fyrir Reyni Jóhannsson í Grindavík í Trefjum í Hafnarfirði árið 2000. Hann er af … Halda áfram að lesa Björn Jónsson ÞH 345
Author: Hafþór Hreiðarsson
Vigri jólaljósum prýddur
2184. Vigri RE 71. Ljósmynd Magnús Jónsson 2022. Frystitogarinn Vigri RE 71 sem er í eigu Brims hf. liggur hér við bryggju í Reykjavík jólaljósum prýddur. Vigri RE 71, sem er 1.217 brl. að stærð, er 66.96 metra langur og 13 metra breiður búinn 4.079 ha. Wartsiila vél. Vigri RE 71var smíðaður fyrir Ögurvík hf. … Halda áfram að lesa Vigri jólaljósum prýddur
Smári ÞH 59
1533. Smári ÞH 59 ex Vigur SU 60. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Smári ÞH 59 kemur hér til hafnar á Húsavík eftir netaróður í byrjun febrúarmánaðar árið 2005. Báturinn var gerður út um tíma frá Húsavík eftir að hafa verið keyptur frá Djúpavogi haustið 2004. Hann var smíðaður í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1979 og … Halda áfram að lesa Smári ÞH 59
Grettir SH 104
182. Grettir SH 104 ex Ólafur Ingi KE 34. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Grettir SH 104 frá Stykkishólmi lætur hér úr höfn á Húsavík í nóvembermánuði árið 2004. Grettir hét upphaflega Sigurður Jónsson SU 150 og var smíðaður í Noregi 1963 og kom til heimahafnar á Breiðdalsvík í nóvember það ár. Grettir hét áður Ólafur Ingi KE … Halda áfram að lesa Grettir SH 104
Marietje Marsilla við Bökugarðinn
IMO 9458248. Marietje Marsilla. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hollenska flutningaskipið Marietje Marsilla kom til Húsavíkur að morgni annars í jólum og lagðist að Bökugarðinum. Skipið er með hráefnisfarm til PCC á Bakka og strax var hafist handa við uppskipun hans. Marietje Marsilla er með heimahöfn í Delfzijl og var smíðað í Hollandi árið 2010. Skipið … Halda áfram að lesa Marietje Marsilla við Bökugarðinn
Sif HU 39
711. Sif HU 39 ex Ólafur Magnússon HF 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Sif HU 39 frá Hvammstanga liggur hér við bryggju á Blönduósi sumarið 2003 en þetta nafn fékk báturinn ári áður. Báturinn hét upphaflega. og nánast alla tíð, Ólafur Magnússon og var smíðaður í Skipasmíðastöð Njarðvíkur árið 1956 og var upphaflega KE 25. … Halda áfram að lesa Sif HU 39
Ísbjörn ÍS 304
2276. Ísbjörn ÍS 304 ex Borgin. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2013. Rækjufrystitogarinn Ísbjörn ÍS 304 frá Ísafirði kom til hafnar á Húsavík um miðjan janúar 2013 og þá var þessi mynd tekin. Það voru Rækjuvinnslan Kampi og útgerðarfélagið Birnir sem áttu skipið og gerðu út í nokkur ár. Ísbjörn, sem er 1103 GT að stærð, var … Halda áfram að lesa Ísbjörn ÍS 304
Sigurpáll ÞH 68
6712. Sigurpáll ÞH 68 ex Nanna EA 12. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2013. Grásleppubáturinn Sigurpáll ÞH 68 frá Húsavík kemur hér úr róðri í aprílmánuði árið 2013. Þorgeir Þorvaldsson átti bátinn og gerði út en hann var keyptur frá Hauganesi árið 1993. Þar hét hann nafnið Nanna EA 212 en þetta eru einu nöfnin sem báturinn … Halda áfram að lesa Sigurpáll ÞH 68
Gleðileg jól – Merry Christmas – God jul – Feliz Navidad
IMO: 9830434. Ilivileq GR 2-201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Með þessari mynd sem tekin var í Reykjavík fyrir ári síðan óska ég öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegrar jólahátíðar með þökk fyrir innlitið á árinu sem er að líða. Merry Christmas to you all who visit this site with thanks for stopping by. God jul og tusinde … Halda áfram að lesa Gleðileg jól – Merry Christmas – God jul – Feliz Navidad
Nýr Cleopatra 50 til Fosnavåg
Ventura M-44_HØ. Ljósmynd Trefjar 2022. Útgerðarfélagið Ventura AS í Fosnavåg í Noregi fékk nýverið afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50 netabát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Aðaleigandi Ventura AS er Martin André Leinebø og leysir báturinn af hólmi eldri stálbát útgerðarinnar. Nýi báturinn ber nafnið Ventura, hann er 15 metrar á lengd og mælist 30brúttótonn. … Halda áfram að lesa Nýr Cleopatra 50 til Fosnavåg









