Vonin KE 10 á Húsavík

1631. Vonin KE 10 ex Lundaberg AK 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022.

Vonin frá Keflavík er á Húsavík þessa dagana en Köfunarþjónusta Sigurðar er að vinna við dráttarbrautina í Húsavíkurslipp.

Vonin hét upphaflega Fálkinn NS 325 og var smíðaður í Bátalóni árið 1982 fyrir Bakkfirðinga.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Dagatal Skipamynda.com er komið út og áhugasamir kaupendur geta pantað það á korri@internet.is

Færðu inn athugasemd