Mars RE 270

2986. Mars RE 270 ex Sólborg RE 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021.

Línu- og netabáturinn Mars RE 270 liggur hér ljósum prýddur við bryggju í Reykjavík en hann er í eigu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf.

Mars var smíðaður hjá Karstensens Skibsværft í Skagen í Danmörku árið 1988 og hét áður Sólborg RE 27.

Báturinn er 34 metrar að lengd og mælist 465 BT að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd