Wilson Mersin lætur úr höfn á Húsavík

Wilson Mersin ex Ramnes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Ég tók nokkrar myndir nú síðdegis þegar Wilson Mersin lét úr höfn á Húsavík eftir að hafa lestað afurðir frá PCC á Bakka. Nánar má lesa um skipið í færslu hér að neðan sem birtist í dag. Wilson Mersin ex Ramnes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Wilson Mersin … Halda áfram að lesa Wilson Mersin lætur úr höfn á Húsavík

Guðmundur St. sigraði í norrænni ljósmyndakeppni

Gömul vísindi og ný. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 2019. Guðmundur St. Valdimarsson, bátsmaður á varðskipinu Tý, sigraði í ljósmyndakeppni sjómanna á Norðurlöndum. Þetta er í annað sinn sem Guðmundur sigrar í keppninni. Ljósmyndin sem Guðmundur kallar Gömul vísindi og ný sigraði einnig í ljósmyndakeppni sjómannablaðsins Víkings í fyrra. Úrslitin voru kunngjörð í dag en Guðmundur vann keppnina … Halda áfram að lesa Guðmundur St. sigraði í norrænni ljósmyndakeppni

Wilson Mersin í höfn á Húsavík

Wilson Mersin við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Í morgun kom flutningaskipið Wilson Mersin til hafnar á Húsavík eftir siglingu frá Grundartanga. Skipið lagðist að Bökugarðinum þar sem fljótlega var hafist handa við að skipa út afurðum frá PCC á Bakka. Wilson Mersin var smíðað árið 1981 og siglir undir kýpverskum fána með heimahöfn í … Halda áfram að lesa Wilson Mersin í höfn á Húsavík