
Að morgni 2. septembers árið 2008 kom upp eldur í vélarrúmi Sigurpáls ÞH 130 á Skjálfanda.
Báturinn var um 1,5 sjm. frá Húsavík og því var stutt fyrir björgunaraðila að sigla að bátnum.
Guðbergur Rafn Ægisson formaður Björgunarsveitarinnar hafði þetta að segja við mbl.is þennan sama dag:
„Eldurinn mun hafa komið upp í vélarrúmi bátsins og þegar þeir opnuðu það þá gaus eldurinn upp í stýrishús,“ sagði Guðbergur Ægisson, formaður björgunarsveitarinnar Garðars á Húsavík, stýrði björgunaraðgerðinni er eldur kom upp í eikarbátnum Sigurpáli ÞH 130.
Þriggja manna áhöfn björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Jóns Kjartanssonar frá Húsavík var ekki nema 12 mínútur á slysstaðinn en eldurinn kom upp 1,5 sjómílur frá Húsavík.
„Við vorum innan við 5 mínútur að fara þetta á hraðbátnum okkar,“ sagði Guðbergur í samtali við mbl.is.
Tveir menn voru um borð í Sigurpáli ÞH 130 en þeir voru fluttir á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun.
Guðbergur sagði að áhöfn Sigurpáls hafi verið komin í vesti og tilbúnir að stökkva í sjóinn þegar björgunarbátinn bar að garði.
Slökkviliðs- og lögreglumenn höfðu farið með Sómabát með vatnsdælu út að bátnum og slökkt eldinn. Búið er að draga Sigurpál til hafnar á Húsavík og dæla sjó upp úr honum.
„Það sér vel á bátnum, hann hefur brunnið töluvert,“ sagði Guðbergur að lokum.

Sigurpáll ÞH 130 hét upphaflega Sjöfn ÞH 142 frá Grenivík.




Á myndinni hér að ofan má sjá Sæborgu ÞH 55 á fullu stími í átt að Sigurpáli ÞH 130. Slökkviliðs- og björgunarsveitarmenn höfðu farið á smábátum að Sigurpáli. Slökkt eldinn og flutt skipverjana tvo í land.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.