Sólberg ÓF á Ólafsfirði

2917. Sólberg ÓF 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Þessar þrjár myndir sem birtast núna tók ég á Ólafsfirði þegar Sólberg ÓF 1 sigldi inn á fjörðinn eftir heimsiglingu frá Tyrklandi. 19. maí 2017. Þaðan var svo siglt yfir til Siglufjarðar þar sem tekið var á  móti skipinu. 2917. Sólberg ÓF 1 siglir inn með Kleifunum. Ljósmynd … Halda áfram að lesa Sólberg ÓF á Ólafsfirði

Amber Sky við Bökugarðinn

Amber Sky. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Flutningaskipið Amber Sky kom til Húsavíkur um miðjan dag í gær og lagðist að Bökugarðinum. Þar er verið að skipa upp hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka en myndina tók ég í dag. Amber Sky er skráð á Antigua og Barbudo. Smíðað árið 2005 og er 3.870 GT að strð. … Halda áfram að lesa Amber Sky við Bökugarðinn

Jólalegt við Húsavíkurhöfn

Húsavík að kveldi 5. desember. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Það var jólalegt um að litast við Húsavíkurhöfn í vikunni þegar seríurnar voru komnar upp á bátum Gentle Giants þar sem þeir liggja við flotbryggju. Við Húsavíkurhöfn að kveldi 5. desember 2018. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær … Halda áfram að lesa Jólalegt við Húsavíkurhöfn

Aðalsteinn Jónsson SU 11

2929. Aðalsteinn Jónsson SU 11 ex Libas. Ljósmynd Þorsteinn Eyfjörð Friðriksson 2018. Aðalsteinn Jónsson SU 11 er hér með nótina úti á síðustu loðnuvertíð en myndina tók frændi minn Þorsteinn Eyfjörð skipverji á Hákonui EA 250 frá Grenivík. Aðalsteinn Jónsson hét áður Libas og smíðaður árið 2004, hann er 94 metrar að lengd og tæpir … Halda áfram að lesa Aðalsteinn Jónsson SU 11

Iða við bryggju á vetrarkveldi

1432. Iða ÞH 321 ex Von ÞH 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þessa mynd af Iðu ÞH 321 tók ég sl. sunnudagskvöld þegar rofaði til eftir norðanhríð síðustu daga. Iða hét áður Von ÞH 54 og var smíðuð í Neskaupstað árið 1975. Báturinn er  6 brl. að stærð og hét upphaflega Þórey NK 13.  Síðan … Halda áfram að lesa Iða við bryggju á vetrarkveldi

Ljósafell SU 70

1277. Ljósafell SU 7o. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Togarinn Ljósafell SU 70 frá Fáskrúðsfirði er hér að toga inn á Eyjafirði haustið 2017 en þá var hann í togararalli fyrir Hafró. Ljósafell SU 70 var smíðað 1973 í Japan en fór í umtalsverðar breytingar og endurbætur í Póllandi 1989 og aftur 2007. Skipið er 55,9 m … Halda áfram að lesa Ljósafell SU 70