2701. Addi Afi GK 302. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Addi afi GK 302 er hér á siglingu á Eyjafirði 25. febrúar árið 2006 en þarna var báturinn glænýr. Á fréttavef Morgunblaðsins mátti lesa þessa frétt sama dag: Sýndu Akureyringum Adda afa JE vélaverkstæði á Siglufirði hefur afhent nýjan fiskibát til nýs eiganda, Útgerðarfélags Íslands. Báturinn … Halda áfram að lesa Addi Afi GK 302
Arney KE 50
1014. Arney KE 50 ex Ársæll Sigurðsson GK 320. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1984. Arney KE 50 leggur hér úr höfn á Húsavík áleiðis austur á firði til síldveiða undir stjórn Húsvíkingsins Óskars Þórhallssonar. Alltaf þótt þetta frekar góð mynd þó ég segi sjálfur frá tekin á fyrstu 35 mm. filmuvélina mína. Arney hét upphaflega Ársæll … Halda áfram að lesa Arney KE 50
Ásdís GK 218
2395. Ásdís GK 218 ex Brík BA 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Ásdís GK 218, sem hét upphaflega Brík BA 2, sést hér á þessum myndum sem ég tók á vetrarvertíðinni árið 2009. Þá efri tók ég í Grindavík en sú neðri var tekin í Sandgerði degi áður eða tveim í Sandgerði. Upphaflega Brík BA … Halda áfram að lesa Ásdís GK 218
Röst SK 17
1009. Röst SK 17 ex Kristbjörg ÞH 44 . Ljósmynd Christian Schmidt 2012. Christian Schmidt leiðsögumaður hjá Norðursiglingu tók þessa flottu mynd af Röst SK 17 á Skjálfanda um árið. Þetta var nánar tiltekið í byrjun septembermánaðar 2012 og pabbi og Christian í hvalaskoðun á einum báta Norðursiglingar. Kannaðist sá gamli við bátinn enda skipstjóri … Halda áfram að lesa Röst SK 17
Snæbjörg ÍS 43
1436. Snæbjörg ÍS 43 ex Snæbjörg BA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Snæbjörg ÍS 43 var smíðuð í Sandgerði og afhent árið 1975 og hét upphaflega Hamraborg SH 222 frá Grundarfirði. Hamraborg var smíðuð í Vélsmiðjunni Herði h/f fyrir Ásgeir Valdimarsson, sem var skipstjóri, og Víði Jóhannsson í Grundarfirði. Hún var 38 brl. að stærð … Halda áfram að lesa Snæbjörg ÍS 43
Wilson Clyde á Húsavík
IMO 9178458. Clyde við Bökugarðinn á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Að undanförnu hafa verið tíðar komur flutningaskipa til Húsavíkur með hráefni fyrir PCC á Bakka. Í dag er Wilson Clyde við Bökugarðinn en skipið var smíðað árið 1998. Hét upphaflega og til októbermánaðar 2001 Dutch Trader. Síðan Admiral Sun til haustsins 2004 og síðan … Halda áfram að lesa Wilson Clyde á Húsavík
Sveinbjörn Jakobsson SH 10
1054. Sveinbjörn Jakobsson SH 10 ex Sæbjörg ST 7. Ljósmynd Alfons Finnsson. Sveinbjörn Jakobsson SH 10 kemur hér til hafnar í Ólafsvík um árið. Upphaflega Drífa RE 10 smíðuð hjá Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi 1967. Báturinn var endurbyggður í Ósey í Hafnarfirði 1997 og fékk nafnið Sæbjörg ST 7. Hann hafði heitið ýmsum … Halda áfram að lesa Sveinbjörn Jakobsson SH 10
Skálaberg RE 7
2850. Skálaberg RE 7 ex Esperanza Del Sur. Ljósmynd Jósef Ægir Stefánsson 2013. Skálaberg RE 7 kom til heimahafnar í Reykjavík í byrjun sumars árið 2013 en Brim h/f hafði keypt togarann haustið 2012 frá Argentínu. Skálabergið var smíðað í Noregi 2003 fyrir færeyskt útgerðarfélag og hét Skálaberg KG 118. Skálabergið var gert út frá Færeyjum … Halda áfram að lesa Skálaberg RE 7
Óli á Stað GK 99
2842. Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Óli á Stað GK 99 kemur hér að landi á Siglufirði í sumar en það er Stakkavík ehf. í Grindavík sem gerir hann út. Óli á Stað GK 99 var smíðaður á Akureyri, í Seiglu, og afhentur vorið 2017. Hann er 14,8 metra langur og … Halda áfram að lesa Óli á Stað GK 99
Börkur NK 122
2865. Börkur NK 122 ex Malene S. Ljósmynd Þorsteinn Eyfjörð Friðriksson 2018. Börkur NK 122 sést hér á loðnumiðunm á síðsut vertíð en myndina tók Þorsteinn Eyfjörð skipverji á Hákoni EA 148. Börkur NK 122 hét áður Malene S frá Noregi og var keyptur hingað til lands í febrúar árið 2014. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir … Halda áfram að lesa Börkur NK 122









