Wilson Caen á Skjálfanda

Wilson Caen ex Dutch Navigator. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Wilson Caen hefur legið við stjóra fyrir utan Húsavík síðan í gærmorgun. Þar hafa skipverjar beðið eftir því að röðin komi að þeim við Bökugarðinn en skipið verður losað á morgun. Skipið, sem var smíðað árið 1998 og mælist 2,999 GT að stærð, er með … Halda áfram að lesa Wilson Caen á Skjálfanda →

Jónína Brynja ÍS 55

2868. Jónína Brynja ÍS 55. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2014. Jónína Brynja ÍS 55 var smíðuð fyrir Jakob Valgeir ehf. í Bolungarvík hjá bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði árið 2013. Jónína Brynja ÍS 55 leysti af hólmi eldri bát útgerðinnar sem strandaði við Straumnes í desember 2012.  Báturinn mælist 30 brúttótonn að stærð og er í … Halda áfram að lesa Jónína Brynja ÍS 55 →

Mikil umsvif við stórskipahöfnina

Þrjú flutningaskip á eða við Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Mikil umferð flutningaskipa hefur verið til Húsavíkur það sem af er ári og er hún tilkomin vegna kísilvers PCC BakkiSilicon hf. á Bakka. Eitt skip, Edenborg, fór frá Húsavík í morgun eftir að hafa losað hráefnisfarm og þegar líða tók á morguninn kom … Halda áfram að lesa Mikil umsvif við stórskipahöfnina →

Bergey VE 544 seld til Grundarfjarðar

2744. Bergey VE 544. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Í gær var undirritaður samningur um að útgerðarfélagið Bergur-Huginn í Vestmannaeyjum, dótturfélag Síldarvinnslunnar, selji Guðmundi Runólfssyni hf. í Grundarfirði togskipið Bergey VE 544.  Í tilkynningu frá Síld­ar­vinnsl­unni eiganda Bergs-Hugins, kemur fram að gert sé ráð fyr­ir að skipið verði af­hent G.Run. í síðasta lagi í sept­em­ber. Þar … Halda áfram að lesa Bergey VE 544 seld til Grundarfjarðar →

Daníel SI 152

482. Daníel SI 152 ex Bjarnarvík ÁR 13. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Daníel SI 152 er eflaust mest myndaði bátur landsins þar sem hann stendur og grotnar niður í slippnum á Siglufirði. Siglfirðingur hf. á Siglufirði keypti bátinn ásamt aflaheimildum frá Þorlákshöfn snemma árs 1989 en þá hét hann Bjarnarvík ÁR 13. Honum var gefið nafnið … Halda áfram að lesa Daníel SI 152 →

Ostermarsch á Skjálfanda

Ostermarsch á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Ostermarsch hefur lónað fyrir utan Húsavík síðan í nótt en það er að koma með hraéfnisfarm fyrir PCC á Bakka. Edenborg er enn undir krananum hjá Eimskip við Bökugarðinn og því bíður Ostermarsch. Selfoss er þó á undan í röðinni en hann er væntanlegur á morgun. Ostermarsch … Halda áfram að lesa Ostermarsch á Skjálfanda →

Fálkatindur NS 99

2866. Fálkatindur NS 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2014. Fálkatindur NS 99 var smíðaður hjá Seiglu ehf. á Akureyri árið 2014 fyrir Glettu litlu ehf. á Borgarfirði eystri. Fálkatindur fór amk. tvo róðra og landaði á Húsavík áður en hann hélt til heimahafnar á Borgarfirði eystri. Austurfrétt sagði svo frá komu hans 3. apríl 2014: Nýr … Halda áfram að lesa Fálkatindur NS 99 →

Edenborg við bryggju á Húsavík

Edenborg við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hollenska flutningaskipið Edenborg kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Skipið naut aðstoðar dráttarbátsins Seifs frá Akureyri við að leggjast að Bökugarðinum en það er 7,196 GT að stærð, smíðað árið 2010. Eins og áður segir er hollenskt með heimahöfn í Delfzijl. Edenborg við … Halda áfram að lesa Edenborg við bryggju á Húsavík →

Ottó N Þorláksson VE 5

1578. Ottó N Þorláksson VE 5 ex RE 203. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Ottó N Þorláksson VE 5 kom til hafnar í Vestmannaeyjum í morgun í kaldaskít. Hólmgeir Austfjörð, skipverji þar um borð, var í frítúr tók þessar myndir af skipi sínu. 1578. Ottó N Þorláksson VE 5 ex RE 203. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. … Halda áfram að lesa Ottó N Þorláksson VE 5 →

Gullhólmi SH 201

2911. Gullhólmi SH 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Gullhólmi SH 201 kom til löndunar á Húsavík 3. nóvember árið 2017 og þá voru þessar myndir teknar. 2911. Gullhólmi SH 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Þegar Gullhólmi var afhentur eigendum sínum haustið 2015 birtist eftirfarandi frétt á vef Fiskifrétta: Nýlega afhenti Seigla ehf. á Akureyri nýjan … Halda áfram að lesa Gullhólmi SH 201 →