Björgvin EA 565

Björgvin EA 565. Ljósmynd aðsend. Hrefnuveiðibáturinn Björgvin EA 565 við bryggju á Húsavík. Síðunni áskotnaðist þessi mynd í dag og ég tók mér það bessaleyfi að birta hana þó ég viti ekki nafn ljósmyndara. Björgvin var upphaflega EA 389 og smíðaður á Akureyri árið 1923. Eigandi Jón E. Sigurðsson. Frá árinu 1933 var hann EA … Halda áfram að lesa Björgvin EA 565 →

Vörður og Áskell á leið á miðin

2740. Vörður EA 748. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Vörður EA 748 hélt út frá Grindavík um kl. 9 í morgun þrátt fyrir leiðinda veðurspá næstu daga. Það voru suðaustan 15m. þegar hann var að skríða út og smá pus í trýnið eins og ljósmyndarinn orðaði það. 2749. Áskell EA 749 ex Helga RE 49. Ljósmynd … Halda áfram að lesa Vörður og Áskell á leið á miðin →

Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 á toginu

1972. Hrafn Sveinbjarnarson GK 255. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Þessi mynd var tekin rétt í þessu vestan við land og sýnir hún frystitogarann Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 að veiðum. Togarinn var smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1988 fyrir Hríseyinga en seldur til Grindavíkur síðla árs 1989. Það var Þorbjörn hf. sem keypti og fékk … Halda áfram að lesa Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 á toginu →

Glettingur NS 100

2666. Glettingur NS 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Glettingur NS 100 er á þessari mynd,sem tekin var 4. maí árið 2005 á útleið frá Húsavík. Báturinn kom við á heimsiglingu sinni frá Reykjavík til heimahafnar á Borgarfirði eystri. Morgunblaðið sagði m.a svo frá 28. apríl 2005: BÁTASMIÐJAN Seigla hefur afhent nýjan bát til Borgarfjarðar eystra. … Halda áfram að lesa Glettingur NS 100 →

Seifur, Ostermarsch og Wilson Caen

Seifur aðstoðar Ostermarsch og Wilson Caen bíður fyrir utan. Ljósmynd Hafþór 2019. Það var mikið um að vera við Húsavíkurhöfn í hádeginu í dag þegar eitt flutningaskip fór frá og annað kom upp að. Seifur snýr í átt að Wilson Caen eftir aðhafa aðstoðað Ostermarsch. Ljósmynd Hafþór Ostermarsch fór frá bryggju og sigldi aðeins út … Halda áfram að lesa Seifur, Ostermarsch og Wilson Caen →

Þórunn Sveinsdóttir VE 401 verður lengd í Skagen

2401. Þórunn Sveinsdóttir VE 401. Ljósmynd Óskar Franz 2016. Þórunn Sveinsdóttir VE 401 lagði af stað í dag til Skagen í Danmörku þar sem skipið verður lengt. Togarinn var smíðaður í Skagen árið 2010 fyrir Ós ehf. í Vestmannaeyjum. Skrokkurinn reyndar smíðaður í Póllandi en skipið fullklárað í Skagen. Til stendur að lengja skipið um 6,6 … Halda áfram að lesa Þórunn Sveinsdóttir VE 401 verður lengd í Skagen →

Mekhanik Sergey Agapov

Mekhanik Sergey Agapov MK 0538. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2017. Mekhanik Sergey Agapov heitir þetta risaskip sem Börkur Kjartansson myndaði á miðunum árið 2017. Það er 115 metra langt og 20 metra breitt. 8,278 GT að stærð. Smíðað 2014 í Nanindah Mutiara Shipyard, í Batam í Indónesíu og siglir undir rússnesku flaggi með heimahöfn í Murmansk. Með því … Halda áfram að lesa Mekhanik Sergey Agapov →