2892. Björgúlfur EA 312 kemur til hafnar í Hafnarfirði í gær. Ljósmynd Óskar Franz. Hér birtast myndir af tveim skuttogurum sem smíðaðir voru í Tyrklandi fyrir íslendinga en þó ekki í sömu stöðinni. Óskar Franz tók myndirnar i gær, 1. maí. Björgúlfur EA 312 var smíðaður fyrir Samherja hf. í Cemre-skipasmíðastöðinni í Istanbúl í Tyrklandi. … Halda áfram að lesa Björgúlfur og Akurey
Ísleifur VE 63 kom með 2000 tonn til Vestmannaeyja í dag
2388. Ísleifur VE 63 ex Ingunn AK 150. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Ísleifur VE 63 kom til hafnar í Vestmannaeyjum í dag og líkt og kompanískipið Kap VE 4 var hann með kolmunna úr Færeysku lögsögunni. 2388. Ísleifur VE 63 ex Ingunn AK 150. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Aflinn var 2000 tonn en Ísleifur hét … Halda áfram að lesa Ísleifur VE 63 kom með 2000 tonn til Vestmannaeyja í dag
Guðbjörg GK 77 á leið í línuróður
2468. Guðbjörg GK 77 ex Guðbjörg GK 666. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Línubáturinn Guðbjörg GK 77 hélt í línuróður frá Grindavík sl. mánudgaskvöld og tók Jón Steinar þessar myndir þá. 2468. Guðbjörg GK 77 ex Guðbjörg GK 666. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Upphaflega hét báturinn, sem er í eigu Stakkavíkue ehf., Ársæll Sigurðsson HF 80 … Halda áfram að lesa Guðbjörg GK 77 á leið í línuróður
Kap VE 4 kom að landi með 1500 tonn af kolmunna í morgun
1742. Kap VE 4 ex Faxi RE 9. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Kap VE 4 kom í morgun til Vestmannaeyja með um 1500 tonn af kolmunna sem fékkst í Færeyskri lögsögu. Þar ku vera mokveiði hafði ljósmyndarinn eftir stákunum á Kap. Aflin fékkst í fjórum togum og það stærsta var 670 tonn. 1742. Kap VE … Halda áfram að lesa Kap VE 4 kom að landi með 1500 tonn af kolmunna í morgun
Skipt um brú
220. Víkingur AK 100 við Slippkantinn á Akureyri. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér koma nokkrar myndir sem teknar voru þegar verið var að skipta um brú á nokkrum bátum og skipum í denn. 162. Bliki EA 12 ex Hringur GK 18 í slippnum á Akureyri. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.. 182. Grettir SH 104 ex Ólafur Ingi KE … Halda áfram að lesa Skipt um brú
Halldór Jónsson SH 217
540. Halldór Jónsson SH 217. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Halldór Jónsson SH 217 er hér á landleið úr netaróðri á Breiðafirði um árið. Báturinn var smíðaður 1961 á Akureyri fyrir Halldór Jónsson útgerðarmann í Ólafsvík. Hann var upphaflega mældur 96 brl. að stærð og var með 400 hestafla M.W.M aðalvél. 1966 var báturinn skráður í eigu Stakkholts hf. … Halda áfram að lesa Halldór Jónsson SH 217
Óli á Stað GK 99 í innsiglingunni til Grindavíkur
2842. Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Þessar glæsilegu myndir tók Jón Steinar í gærkveldi þegar línubáturinn Óli á Stað GK 99 kom að landi í Grindavík. Það var þungur sjór með sunnanbáru og þegar að vindur fór að blása að norðan á móti bárunni þá ýfist sjórinn og brimar, þó svo … Halda áfram að lesa Óli á Stað GK 99 í innsiglingunni til Grindavíkur
Trausti ÍS 300
1170. Trausti ÍS 300. Ljósmynd Sigurður Jóhannesson. Á þessum myndum Sigurðar Jóhannessonar er Tausti ÍS 300 en myndirnar voru teknar árið 1972. Trausti ÍS 300 frá Suðureyri við Súgandafjörð var smíðaður í Stálvík árið 1971. Hann hafði smíðanúmer 16 hjá Stálvík og var smíðaður eftir teikningu Ágústs G. Sigurðssonar Í Morgunblaðinu þann 20. júní 1971 … Halda áfram að lesa Trausti ÍS 300
Vésteinn GK 88 kemur að
2908. Vésteinn GK 88. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessar myndir í gærkveldi þegar línubáturinn Vésteinn GK 88, sem Einhamar Seafood ehf, gerir út, kom að landi í Grindavík. 2908. Vésteinn GK 88. Ljósmynd Jón Steinar 2019. "Það var aðeins farið að anda að norðan á móti sunnanbárunni í gærkveldi þegar að Vésteinn … Halda áfram að lesa Vésteinn GK 88 kemur að
Kristín GK 457 lét úr höfn í Vestmannaeyjum í kvöld
972. Kristín GK 457 ex Kristín ÞH 157. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Línubáturinn Kristín GK 457 lét úr höfn í Vestmannaeyjum og tók Hólmgeir Austfjörð þessar myndir við það tækifæri. Kristín ÞH 157 var smíðuð í Boizenburg í Austur-Þýskalandi 1965, hét upphaflega Þorsteinn RE 303. 972. Kristín GK 457 ex Kristín ÞH 157. Ljósmynd Hólmgeir … Halda áfram að lesa Kristín GK 457 lét úr höfn í Vestmannaeyjum í kvöld









