Þórshöfn á Langanesi

Þórshöfn á Langanesi á áttunda áratug síðustu aldar. Ljósmynd Ágúst Guðmundsson. Á þessari mynd Ágústs Guðmunssonar frá áttunda áratug síðustu aldar má sjá margan bátinn sem gerður var út frá Þórshöfn á þeim tíma. Myndin er jú tekin á Þórshöfn. Borgþór ÞH 231 sést tv. á myndinni, Hafrún ÞH 144 er yst bátanna í röðinnifyrir … Halda áfram að lesa Þórshöfn á Langanesi →

Grímsey ST 2

1317. Grímsey ST 2 ex Engilráð ÍS 60. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rækjubáturinn Grímsey ST 2 kemur hér til hafnar á Húsavík sumarið 1993. Báturinn, sem var 30 brl. að stærð, hét upphaflega Engilráð ÍS 60 og var smíðuð á Skagaströnd fyrir Fjarkann h/f á Ísafirði árið 1973. Upphaflega var í honum 240 hestafla Dormanaðalvél en … Halda áfram að lesa Grímsey ST 2 →

Garðar II SH 164

1343. Garðar II SH 164. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Garðar II SH 164 frá Ólafsvík er hér við bryggju á Húsavík um árið en báturinn stundaði þá úthafsrækjuveiðar úti fyrir Norðurlandi. Báturinn var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri 1974 fyrir Björn & Einar s/f í Ólafsvík. Hann var 142 brl. að stærð búinn 765 hestafla M.WM … Halda áfram að lesa Garðar II SH 164 →

Vigri á togslóðinni

2184. Vigri RE 71. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Frystitogarinn Vigri RE 71 er hér að veiðum í sl. mánuði en myndina tók Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5. Vigri RE 71 var smíðaður fyrir Ögurvík hf. í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Flekkefjord í Noregi árið 1992. Togarinn, sem er 1.217 … Halda áfram að lesa Vigri á togslóðinni →

Solundoy á útleið frá Grindavík

IMO 9158654. Solundoy ex Øystrand. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessar myndir á dögunum þegar írksi brunnbáturinn Solundoy lét úr höfn í Grindavík. Báturinn var smíðaður árið 1997 hjá Aas Mek Verksted AS í Vestnes í Noregi. Hann er 30,6 metrar að lengd og 7,5 metra breiður. Mælist 265 brúttótonn að stærð.Hét Øystrand … Halda áfram að lesa Solundoy á útleið frá Grindavík →

Keilir verður gerður upp sem skemmtibátur

1420.Keilir SI 145 ex Keilir GK 145. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Þá er Keilir SI 145 frá Siglufirði kominn til Húsavíkur og ég líka. Báturinn er kominn upp í slipp en í vetur verður hann gerður upp sem skemmtibátur. Keilir, sem er í eigu Gunnars Júlíussonar á Siglufirði, var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi og … Halda áfram að lesa Keilir verður gerður upp sem skemmtibátur →

Sólberg ÓF 1 að veiðum

2917. Sólberg ÓF 1. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Frystitogarinn Sólberg ÓF 1 er hér við ýsuveiðar fyrir vestan land á dögunum. Þessi glæsilegi frystitogari er hannaður af Skipsteknisk í Noregi en smíðaður fyrir Rammann hf. í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi.  Sólberg ÓF 1 er 79,85 metrar að lengd, 15,4 metrar á breidd og alls 3.720 brúttótonn.  Með því að smella … Halda áfram að lesa Sólberg ÓF 1 að veiðum →

Margrét GK 33, nýr línubátur Útgerðarfélags Sandgerðis

2952. Margrét GK 33. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Margrét GK 33, nýr línubátur Útgerðarfélags Sandgerðis ehf., er hér við bryggju í Hafnarfirði í vikunni. Báturinn, sem smíðaður er af Víkingbátum ehf,, leysir Von GK 113 af hólmi en Nesfiskur keypti Útgerðarfélag Sandgerðis árið 2018. Margrét GK 33 er tæplega 22 BT að stærð en lengd … Halda áfram að lesa Margrét GK 33, nýr línubátur Útgerðarfélags Sandgerðis →

Baldvin Njálsson GK 400 á ýsuslóðinni

2182. Baldvin Njálsson GK 400 ex Rán HF 4. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 er hér á ýsuslóðinni vestan við land sl. sunnudag. Baldvin er nýkominn úr skveringu og óhætt að segja að nýja lúkkið lúkkar vel. Togarinn var smíðaður í Vigó á Spáni 1990 (1991 segir sum staðar) fyrir Norðmenn … Halda áfram að lesa Baldvin Njálsson GK 400 á ýsuslóðinni →

Avataq GR 6-19

Avataq GR 6-19. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Þessa mynd af grænlenska togaranum Avataq GR 6-19 tók ég í dag en skipið er í smíðum hjá skipasmíðastöðinni í Astilleros de Murueta í Bilbao á Spáni.  Avataq GR 6-19 er annar tveggja frystitogara sem stöðin smíðar fyrir Royal Greenland en sá fyrri, Sisimiut GR 6-18, var afhentur … Halda áfram að lesa Avataq GR 6-19 →