1125. Kristján Guðmundsson ÍS 77 ex Palomar T-22-SA. Ljósmynd Sigurður Jóhannesson. Kristján Guðmundsson ÍS 77 kemur hér að landi á Suðureyri við Súgandafjörð en báturinn var keyptur þangað frá Noregi í lok árs 1970. Það var Útgerðarfélagið Óðinn hf. sem keypti bátinn sem var smíðaður hjá Einar S. Nielsen Mek. Verksted A/S í Harstad og … Halda áfram að lesa Kristján Guðmundsson ÍS 77
Sævík GK 757 að draga línuna
2714. Sævík GK 757 ex Óli Gísla GK 112. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Grindvíski línubáturinn Sævík GK 757 er hér að draga línuna á dögunum skammt undan sinni heimahöfn. Það er Vísir hf. sem gerir bátinn út en hann hét áður Óli Gísla GK 112 frá Sandgerði. Báturinn var smíðaður fyrir Sjávarmál ehf. í Sandgerði … Halda áfram að lesa Sævík GK 757 að draga línuna
Qaqqatsiaq GR 6-403 kom til Hafnarfjarðar
Qaqqatsiaq GR 6-403 ex Steffen C. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Grænlenski frystitogarinn Qaqqatsiaq GR 6-403 kom til hafnar í Hafnarfirði undir kvöld í gær og tók Óskar Franz þessar myndir af honum. Qaqqatsiaq GR 6-403 var smíðaður hjá Ørskov Christensens Staalskibsværft A/S í Frederikshavn, Danmörku, og afhentur á árinu 2001. Stálvinna smíðinnar fór fram hjá … Halda áfram að lesa Qaqqatsiaq GR 6-403 kom til Hafnarfjarðar
Ólafur Friðbertsson ÍS 34
256. Ólafur Friðbertsson ÍS 34. Ljósmynd Sigurður Jóhannesson. Ólafur Friðbertsson ÍS 34 siglir hér inn Súgandafjörðinn til hafnar á Suðureyri. Ólafur Friðbertsson ÍS 34 var smíðaður Flekkefjord í Noregi 1964 fyrir Súgfirðinga og sagði svo frá komu hans í Vesturlandi 28. apríl 1964: Á sumardaginn fyrsta kom nýr vélbátur til Súgandafjarðar, Ólafur Friðbertsson ÍS 34. … Halda áfram að lesa Ólafur Friðbertsson ÍS 34
Mark ROS 777 fyrir utan Grindavík í gær
Mark ROS 777. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Þýski togarinn Mark kom upp undir Grindavík í gær, hverra erinda veit ég ekki en Elvar Jósefsson tók þessar myndir. Skipið var smíðað í Tersan skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og afhent eigandanum, Parlevliet & Van der Plas group í júní 2015. Heimahöfn þess er í Rostock Mark ROS 777. … Halda áfram að lesa Mark ROS 777 fyrir utan Grindavík í gær
Heiðrún ÍS 4 við síldarlöndun á Siglufirði
87. Heiðrún ÍS 4 ex Hafborg MB 76. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Heiðrún ÍS 4 er hér á mynd Hannesar Baldvinssonar að landa síld á Siglufirði. Báturinn hét upphaflega Hafborg MB 76, hann var smíðaður í Skipasmíðastöð KEA og sjósettur 6. maí árið 1944. Hafborg MB 76 var skráð 92 brl. að stærð búið 240 … Halda áfram að lesa Heiðrún ÍS 4 við síldarlöndun á Siglufirði
Vestmannaey VE 54 komin á flot
2954. Vestmannaey VE 54 fór á flot í morgun. Ljósmynd Guðmundur Alfreðsson. Hin nýja Vestmannaey sem er í smíðum hjá skipasmíðastöðinni Vard í Aukra í Noregi var sjósett í morgun. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir að sjósetningin hafi átt sér stað með nokkuð óvenjulegum hætti og lýsir Guðmundur Alfreðsson útgerðarstjóri Bergs-Hugins henni svo: „Skipið var dregið … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54 komin á flot
Þorgeir GK 73 á Seyðisfirði
222. Þorgeir GK 73 ex Ingólfur GK 96. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Þorgeir GK 73 er hér á Seyðisfirði eitthvað að lóna, þetta var á síldarárunum og myndina tók Hreiðar Olgeirsson þá skipverji á Dagfara ÞH 70. Þorgeir GK 73 var 127 brl. að stærð. Síðar endurmældur og var þá 137 brl. Báturinn hét áður Ingólfur … Halda áfram að lesa Þorgeir GK 73 á Seyðisfirði
Margrét GK 707 á skaki
2794. Margrét GK 707 ex Margrét HF 4. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Handfærabáturinn Margrét GK 707 er að veiðum skammt utan við Grindavík á þessum myndum Jóns Steinars frá því um daginn. Margrét GK 707 hét upphaflega Ásdís SH 154 og var smíðuð árið 2010. Hefur heitið þessum tveim nöfnum en Margrét hefur verið HF … Halda áfram að lesa Margrét GK 707 á skaki
Schillplate við Bökugarðinn
Schillplate við Bökugarðinn í dag. Ljósmynd Gaukur Hjartarson. Flutningaskipið Schillplate kom upp að Bökugarðinum í morgun með hráefnsfarm fyrir PCC á Bakka. Skipið var smíðað í Víetnam árið 2009 og er 2,415 GT að stærð. 85 metra langt og 12 metra breitt. Schillplate, sem siglir undir fána Gibraltar, hét upphaflega 002 Lisemco Haipong og síða … Halda áfram að lesa Schillplate við Bökugarðinn









