Einar Guðnason ÍS 303 á strandstað við Gölt

2907. Einar Guðnason ÍS á strandstað við Gölt. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 14. nóvember 2019. Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður á v/s Tý tók þessar myndir af Einari Guðnasyni ÍS 303 á strandstað við Gölt í mynni Súgandafjarðar. Einar Guðnason ÍS 303 var að koma úr línuróðri skömmu fyrir miðnætti í 13. nóvember þegar strandið varð. … Halda áfram að lesa Einar Guðnason ÍS 303 á strandstað við Gölt →

Sjødis á siglingu inn Jössingfjörðinn

Sjødis R-17-SK. Ljósmynd Baldur Sigurgeirsson 2019. Sjødis heitir hann þessi eikarbátur sem Baldur Sigurgeirsson myndaði í Jössingfirðinum norska í dag. Báturinn, sem í dag er frístundabátur í eigu Dalane Folkemuseum í Egersund, var smíðaður hjá Eidsbotten Båtbyggeri í Kopervik og afhentur frá þeim í janúar 1966. Sjødis er 17,53 metrar að lengd, breiddin er 5,21 … Halda áfram að lesa Sjødis á siglingu inn Jössingfjörðinn →

Hagbarður TH 1

538. Hagbarður TH 1. Ljósmynd Steingrímur Árnason. Hagbarður TH 1 frá Húsavík kemur hér til hafnar á Raufarhöfn drekkhlaðinn af síldarmiðunum. Myndina tók Steingrímur Árnason, Steini á Fossi, en hann var vélstjóri á bátum frá Húsavík. Hagbarður TH 1 var smíðaður í Reykjavík árið 1946 og eigandi hans Húsavíkurhreppur. Báturinn var 47 brl. að stærð … Halda áfram að lesa Hagbarður TH 1 →

Týr við Grindavík á dögunum

1421. Týr úti fyrir Grindavík. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessar myndir af varðskipinu Tý á dögunum er skipið var statt úti fyrir Grindavík. Týr var smíðaður í Aarhus Flydedok A/S í Danmörku árið 1975 en hér má lesa fróðleik um skipið. Varðskipið Týr úti fyrir Grindavík. Ljósmyndir Jón Steinar 2019. Með því … Halda áfram að lesa Týr við Grindavík á dögunum →

Indriði Kristins BA 751

2907. Indriði Kristins BA 751. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Indriði Kristins BA 751 sem hér sést koma til hafnar í Grindavík vorið 2016 fékk síðar nafnið Einar Guðnason ÍS 303 og var gerður út frá Suðureyri. Sú útgerð hlaut snöggan endi nú í vikunni þegar báturinn strandaði og ónýttist við Gölt í mynni Súgandafjarðar. Þyrla … Halda áfram að lesa Indriði Kristins BA 751 →

Salka og Fanney komnar í jólabúninginn

1470. Salka og 1445. fanney við bryggju á Húsavík í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þrátt fyrir að enn séu 30 dagar, 20 klukkustundir, 22 mínútur og 10 sekúndur til jóla (þegar þetta er skrifað) eru hvalaskoðunarbátarnir Salka og Fanney komnar í jólabúninginn. Ef síðuritara skjöplast ekki er það einum 4-5 dögum fyrr en á síðsta … Halda áfram að lesa Salka og Fanney komnar í jólabúninginn →

Vestmannaey og Bergey á Akureyri

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hér koma myndir af Vestmannaey VE 54 og Bergey VE 144 sem teknar voru á Akureyri með um fimm vikna millibilli. Myndin af Vestmannaey VE 54 var tekin þann 4. október sl. en Bergeyjarmyndin í fyrradag, 12. nóvember. 2964. Bergey VE 144. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Svo … Halda áfram að lesa Vestmannaey og Bergey á Akureyri →

Njáll ÓF 275 kom til hafnar á Húsavík

Njáll ÓF 275 ex Njáll RE 275. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Dragnótabáturinn Njáll ÓF 275 kom til hafnar á Húsavík síðdegis í dag en hann hafði verið að veiðum á Skjálfanda. Njáll ÓF 275 var smíðaður í Bátalóni hf.í Hafnarfirði árið 1980 og var með smíðanúmer 460 frá stöðinni. Smíðaður fyrir Sjóla hf. í Reykjavík … Halda áfram að lesa Njáll ÓF 275 kom til hafnar á Húsavík →

Vestmannaey VE 54 kom til Akureyrar undir kvöld

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Togskipið Vestmannaey VE 54 kom til Akureyrar undir kvöld í dag en hverra erinda veit ég ekki. Ég fíraði ISO-inu upp í hæstu hæðir til að ná einhverju birtingarhæfu og hér er afraksturinn. 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Með því að smella á myndirnar … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54 kom til Akureyrar undir kvöld →

Víðir Trausti SU 517

1178. Víðir Trausti SU 517. Ljósmynd úr safni Auðar Stefánsdóttur. Víðir Trausti SU 517 var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar fyrir Trausta hf. á Eskifirði og kom hann til heimahafnar í fyrsta skipti þann 24. júlí 1971 Báturinn var 50 brl. að stærð, búinn 240 hestafla Caterpillar aðalvél. Víðir Trausti SU 517 var seldur norður á Hauganes … Halda áfram að lesa Víðir Trausti SU 517 →