Erling KE 45

1361. Erling KE 45 ex Seley SU 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Erling KE 45 var gerður út rækju frá Húsavík hér áður fyrr og hér er hann að koma inn til löndunar. Eigandi skipsins var Saltver hf. í Keflavík.  Skipið var byggt árið 1969 hjá A/S Eidsvik Skipsbyggeri Uskedal Noregi. Hann hét upphaflega Stjernøysund og var með … Halda áfram að lesa Erling KE 45

X Press Vesuvio kom og fór

X Press Vesuvio kemur til Vigo. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Gámaflutningaskipið X Press Vesuvio kom til hafnar í Vigo í gær og fór aftur um kvöldið. Skipið siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Valletta. Það var smíðað árið 2005 og er 133,6 metrar að lengd, breidd þess er 19,6 metrar og það mælist 6,454 … Halda áfram að lesa X Press Vesuvio kom og fór

MSC America við kæjann

MSC America ex America Senator. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið MSC America lá við kæjann í Vigo í fyrradag en þetta 216 metra langa gámaflutningaskip var smíðað árið 1993. Breidd þess er 32 metrar og mælist það 34,231 GT að stærð. Það siglir undir fána Panama. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa MSC America við kæjann

SIL við bryggju í Vigo

ZDRL1. SIL FK0403. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Skuttogarinn SIL FK0403 liggur við bryggju í Vigo og tók ég þessa mynd af honum þar. Togarinn var smíðaður árið 1987 og siglir undir bresku flaggi með heimahöfn í Stanley, sem mér sýnist vera á Falklandseyjum. SIL er 78,5 metra langur, 14 metra breiður og mælist 2,156 GT … Halda áfram að lesa SIL við bryggju í Vigo

Novo Morrina við bryggju í Vigo

Novo Morrina við bryggju í Vigo. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Novo Morrina er spænskur togari sem lá við bryggju í Vigo í gær. Hann var smíðaður árið 1998 og mælist 298 GT að stærð. 32 metra langur og 8 metra breiður. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. … Halda áfram að lesa Novo Morrina við bryggju í Vigo

Baffin Bay á Vigoflóa

MSPL9. Baffin Bay M1033. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Breski skuttogarinn Baffin Bay M1033 sigldi út Vigoflóann í morgun og stökk ég af stað til að mynda hann þegar ég varð hans var á AIS. Baffin Bay var smíðaður árið 1995 (1993 segja sumar skrár) og siglir undir bresku flaggi með heimahöfn í Milford Haven sem … Halda áfram að lesa Baffin Bay á Vigoflóa