Sjødis R-17-SK. Ljósmynd Baldur Sigurgeirsson 2019. Sjødis heitir hann þessi eikarbátur sem Baldur Sigurgeirsson myndaði í Jössingfirðinum norska í dag. Báturinn, sem í dag er frístundabátur í eigu Dalane Folkemuseum í Egersund, var smíðaður hjá Eidsbotten Båtbyggeri í Kopervik og afhentur frá þeim í janúar 1966. Sjødis er 17,53 metrar að lengd, breiddin er 5,21 … Halda áfram að lesa Sjødis á siglingu inn Jössingfjörðinn
Hagbarður TH 1
538. Hagbarður TH 1. Ljósmynd Steingrímur Árnason. Hagbarður TH 1 frá Húsavík kemur hér til hafnar á Raufarhöfn drekkhlaðinn af síldarmiðunum. Myndina tók Steingrímur Árnason, Steini á Fossi, en hann var vélstjóri á bátum frá Húsavík. Hagbarður TH 1 var smíðaður í Reykjavík árið 1946 og eigandi hans Húsavíkurhreppur. Báturinn var 47 brl. að stærð … Halda áfram að lesa Hagbarður TH 1
Týr við Grindavík á dögunum
1421. Týr úti fyrir Grindavík. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessar myndir af varðskipinu Tý á dögunum er skipið var statt úti fyrir Grindavík. Týr var smíðaður í Aarhus Flydedok A/S í Danmörku árið 1975 en hér má lesa fróðleik um skipið. Varðskipið Týr úti fyrir Grindavík. Ljósmyndir Jón Steinar 2019. Með því … Halda áfram að lesa Týr við Grindavík á dögunum
Indriði Kristins BA 751
2907. Indriði Kristins BA 751. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Indriði Kristins BA 751 sem hér sést koma til hafnar í Grindavík vorið 2016 fékk síðar nafnið Einar Guðnason ÍS 303 og var gerður út frá Suðureyri. Sú útgerð hlaut snöggan endi nú í vikunni þegar báturinn strandaði og ónýttist við Gölt í mynni Súgandafjarðar. Þyrla … Halda áfram að lesa Indriði Kristins BA 751
Salka og Fanney komnar í jólabúninginn
1470. Salka og 1445. fanney við bryggju á Húsavík í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þrátt fyrir að enn séu 30 dagar, 20 klukkustundir, 22 mínútur og 10 sekúndur til jóla (þegar þetta er skrifað) eru hvalaskoðunarbátarnir Salka og Fanney komnar í jólabúninginn. Ef síðuritara skjöplast ekki er það einum 4-5 dögum fyrr en á síðsta … Halda áfram að lesa Salka og Fanney komnar í jólabúninginn
Vestmannaey og Bergey á Akureyri
2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hér koma myndir af Vestmannaey VE 54 og Bergey VE 144 sem teknar voru á Akureyri með um fimm vikna millibilli. Myndin af Vestmannaey VE 54 var tekin þann 4. október sl. en Bergeyjarmyndin í fyrradag, 12. nóvember. 2964. Bergey VE 144. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Svo … Halda áfram að lesa Vestmannaey og Bergey á Akureyri
Njáll ÓF 275 kom til hafnar á Húsavík
Njáll ÓF 275 ex Njáll RE 275. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Dragnótabáturinn Njáll ÓF 275 kom til hafnar á Húsavík síðdegis í dag en hann hafði verið að veiðum á Skjálfanda. Njáll ÓF 275 var smíðaður í Bátalóni hf.í Hafnarfirði árið 1980 og var með smíðanúmer 460 frá stöðinni. Smíðaður fyrir Sjóla hf. í Reykjavík … Halda áfram að lesa Njáll ÓF 275 kom til hafnar á Húsavík
Vestmannaey VE 54 kom til Akureyrar undir kvöld
2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Togskipið Vestmannaey VE 54 kom til Akureyrar undir kvöld í dag en hverra erinda veit ég ekki. Ég fíraði ISO-inu upp í hæstu hæðir til að ná einhverju birtingarhæfu og hér er afraksturinn. 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Með því að smella á myndirnar … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54 kom til Akureyrar undir kvöld
Víðir Trausti SU 517
1178. Víðir Trausti SU 517. Ljósmynd úr safni Auðar Stefánsdóttur. Víðir Trausti SU 517 var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar fyrir Trausta hf. á Eskifirði og kom hann til heimahafnar í fyrsta skipti þann 24. júlí 1971 Báturinn var 50 brl. að stærð, búinn 240 hestafla Caterpillar aðalvél. Víðir Trausti SU 517 var seldur norður á Hauganes … Halda áfram að lesa Víðir Trausti SU 517
Vilborg ÞH 11
6431. Vilborg ÞH 11 ex Eyrún ÞH 268. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2014. Vilborg ÞH 11, sem er í eigur Hreiðars Jósteinssonar á Húsavík, var smíðuð í Trefjum árið 1982. Hún er af gerðinni Skel 80, mælist 5,3 brl./5,21 BT að stærð búin 63 hestafla Mermaid-vél síðan 1998. Upphaflega hét báturinn Draumur ÞH 31 og var … Halda áfram að lesa Vilborg ÞH 11









