1895. Andvari VE 100. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Á þessari mynd Tryggva Sigurðssonar gefur að líta Andvara VE 100. Andvari var 127 brl. að stærð og smíðaður árið 1989 fyrir Jóhann Halldórsson hjá Tczew Yard í Tczew í Póllandi. Andvari VE-100 sökk um 12 sjómílur suður af Vík í Mýrdal þar sem hann var að veiðum … Halda áfram að lesa Andvari VE 100
Árbakur EA 5
2154. Árbakur EA 5 ex Árbakur EA 308. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Hér kemur Akureyrartogarinn Árbakur EA 5, til heimahafnar í júlímánuði árið 2006. Árbakur, sem áður hét Natsek, var smíðaður fyrir Grænlendinga árið 1980 hjá Örskov Christensens Staalskibsvært A/S, Frederikshavn í Danmörku, og var smíðanúmer 112 hjá stöðinni. Skipið var hannað af Nordvestconsult A/S … Halda áfram að lesa Árbakur EA 5
X Press Vesuvio á Vigoflóa
IMO: 9328651. X Press Vesuvio. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Þessi mynd var tekin fyrir tæpu ári síðan og sýnir gámaflutningaskipið X Press Vesuvio sigla út frá hafnarborginni Vigo á norður Spáni. Skipið siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Valletta. Það var smíðað árið 2005 og er 133,6 metrar að lengd, breidd þess er 19,6 metrar … Halda áfram að lesa X Press Vesuvio á Vigoflóa
Wilson Newcastle
IMO 9431006. Wilson Newcastle. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Flutningaskipið Wilson Nanjing kom til Húsavíkur nú undir kvöld og lagðist að Bökugarðinum þar sem hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka verður skipað upp. Skipið, sem kom einnig til Húsavíkur í september 2018, er skráð á Möltu með heimahöfn í Valletta. Það var smíðað árið 2011 og er … Halda áfram að lesa Wilson Newcastle
Sæfari SH 104
1750. Sæfari SH 104 ex Vinur ÞH 73. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Vinur ÞH 73 hefur verið seldur til Stykkishólms þar sem hann fékk nafnið Sæfari SH 104. Það er Hólmurinn ehf. sem mun gera bátinn út. Báturinn, sem kemur úr smiðju Baldurs á Hlíðarenda við Akureyri, var smíðaður árið 1986 og hét Matthildur EA … Halda áfram að lesa Sæfari SH 104
Lilja ÞH 21
6603. Lilja ÞH 21 ex Einar EA 209. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Tók þessa mynd fyrir stundu þegar strandveiðibáturinn Lilja ÞH 21 kom að landi á Húsavík. Lilja ÞH 21 hét áður Einar EA 209 og var smíðaður í Plastgerðinni sf. í Kópavogi árið 1984. Báturinn er tæplega 6 brl. að stærð. Lilja hét upphaflega … Halda áfram að lesa Lilja ÞH 21
Esjar SH 75
2330. Esjar SH 75. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2020. Elvar Jósefsson tók þessa mynd af dragnótarbátnum Esjari SH 75 áleið til hafnar á Rifi. Esjar SH 75, sem er gerður út af samnefndu fyrirtæki, var smíðaður hjá Ósey í Hafnarfirði árið 1999 og hefur alla tíð heitið sama nafni. Báturinn var lengdur árið 2002 og mælist … Halda áfram að lesa Esjar SH 75
Lauralex II
Lauralex II SN 953 470. Ljósmynd Magnús Jónsson 2020. Maggi Jóns tók þessa um sl. fimmtudag en báturinn fór á flot þann dag en þetta er nýsmíði frá Trefjum. Veit ekkert nánar um bátinn enn sem komið er annað en það að hann er Cleopatra 33 og heitir Lauralex II. Þetta kemur allt síðar. Með … Halda áfram að lesa Lauralex II
Halldór NS 302
2672. Halldór NS 302 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Halldór NS 302 sést hér á myndum Jóns Steinars leggja upp í línuróður frá Bakkafirði í vikunni. Halldór NS 302, sem er í eigu Halldórs fiskvinnslu ehf. á Bakkafirði, hét upphaflega Óli á Stað GK 99 og var smíðaður í Njarðvík … Halda áfram að lesa Halldór NS 302
Örn KE 14
2313. Örn KE 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Á þessari mynd sést Örn KE 14 koma að landi í Keflavík eftir dragnótaróður í Bugtina. Örn KE 14 Örn var nýsmíði nr. B22 frá Crist skipasmíðastöðinni í Gdansk, Póllandi. Báturinn er 159 brúttótonn að stœrð, 8 metra breiður og um 22 metrar að lengd. Örn var smíðaður … Halda áfram að lesa Örn KE 14









