Árni á Bakka ÞH 380

27. Árni á Bakka ÞH 380. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggur Árni á Bakka ÞH 380 við bryggju á athafnasvæði Slippstöðvarinnar á Akureyri um árið. Árni á Bakka ÞH 380 var gerður út til rækjuveiða frá Kópaskeri árin 1987-1989 en Sæblik h/f keypti bátinn frá Hafnarfirði og kom hann til heimahafnar vorið 1987. Árni á … Halda áfram að lesa Árni á Bakka ÞH 380 →

Örvar SH 777 kemur að á Rifi

2159. Örvar SH 777 ex Vestkapp SF-8-S. Ljósmynd Óskar Frans 2020. Línuskipið Örvar SH 777 kom til hafnar á Rifi um helgina og tók óskar Frans þessa mynd við það tækifæri. Örvar SH 777 hét upphaflega Tjaldur II SH 370 og var smíðaður í Noregi fyrir KG fiskverkun á Rifi árið 1992. Líkt og systurskipið Tjaldur … Halda áfram að lesa Örvar SH 777 kemur að á Rifi →

Sementsflutningaskipið Danavik

IMO 8221363. Danavik ex Klc Banshee. Ljósmynd KEÓ 2020. Sementsflutningaskipið Danavik kom til Helguvíkur um helgina og tók Karl Einar Óskarsson hafnarvörður þessar myndir. Danavik, sem siglir undir fána Marshalleyja, var smíða árið 1983. Það er 104 metrar að lengd og 16 metra breitt. Mælist 3,625 brúttótonn að stærð og er með heimahöfn í Majuro. … Halda áfram að lesa Sementsflutningaskipið Danavik →

Nýr Vilhelm sjósettur í Gdynia

Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Samherji.is 2020. Nýr Vilhelm Þorsteinsson EA var sjósettur hjá skipasmíðastöðinni Kar­sten­sens Skibsværft í Gdynia í Póllandi hinn 12. júní síðastliðinn.  Skrokkurinn var tilbúinn til sjósetningar fyrir átta vikum en vegna Covid-19 heimsfaraldursins var ekki að ráðist í hana fyrr en nú. Á heimasíðu Samherja segir að skipið muni leysa af … Halda áfram að lesa Nýr Vilhelm sjósettur í Gdynia →