Knarrarnes KE 399

1251. Knarrarnes KE 399 ex Knarrarnes EA 399. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Knarrarnes KE 399 sem hér sést koma að landi í Sandgerði var smíðað í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1972. Báturinn, sem var 11 brl. að stærð, hét alla tíð Knarrarnes. Hann var upphaflega GK 157 og smíðaður fyrir Indriða Kristinsson og Guðjón Indriðason í … Halda áfram að lesa Knarrarnes KE 399 →

Jón Guðmundsson ÍS 75

1390. Jón Guðmundsson ÍS 75 ex Vopni NS 65. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jón Guðmundsson ÍS 75 sést hér koma til hafnar í Sandgerði um árið en báturinn var smíðaður í Bátalóni árið 1973. Upphaflega hét hann Vopni NS 65 og var smíðaður fyrir Vopna hf. á Vopnafirði. Báturinn, sem var 11 brl. að stærð, var … Halda áfram að lesa Jón Guðmundsson ÍS 75 →

Ásborg RE 15

1185. Ásborg RE 15 ex Guðmundur Arnar KE 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ásborg RE 15 hét upphaflega Ásgeir ÞH 198 og var smíðaður fyrir Þórð Ásgeirsson og Magnús Andrésson á Húsavík. Smíðin fór fram í Skipasmíðastöð Austfjarða hf. á Seyðisfirði og var báturinn, sem var 12 brl. að stærð, afhentur árið 1971. Ásgeir ÞH 198 … Halda áfram að lesa Ásborg RE 15 →

Sæbjörg í slipp á Akureyri

1132. Sæbjörg EA 184 ex Sæljón SH 9. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1984. Hér var verið að skvera Sæbjörgu EA 184 frá Grímsey í slippnum á Akureyri vorið 1984. Sæbjörg hét upphaflega Sæljón BA 100 og var smíðuð í Bátalóni fyrir Breið hf. á Patreksfirði árið 1970. Sumarið 1971 var Sæljónið selt til Ólafsvíkur og varð … Halda áfram að lesa Sæbjörg í slipp á Akureyri →

Ilivileq í Reykjavíkurhöfn

IMO: 9830434. Ilivileq GR 2-201. Ljósmynd Magnús Jónsson. Grænlenski frystitogarinn Ilivileq GR 2-201 lá í höfn í Reykjavík yfir hátíðarnar og tók Magnús Jónsson þessa mynd af honum prýddum jólaljósum. Togarinn var smíðaður í spænsku skipasmíðastöðinni Astilleros Armon Gijon á Norður-Spáni og afhentur á vordögum 2020. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Ilivileq í Reykjavíkurhöfn →

Vigri RE 71 í slipp

2184. Vigri RE 71. Ljósmynd Magnús Jónsson. Frystitogarinn Vigri RE 71 hefur verið í slipp í Reykjavík yfir hátíðarnar og tók Magnús Jónsson þessa mynd af honum prýddum jólaljósum. Vigri RE 71 var smíðaður fyrir Ögurvík hf. í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Flekkefjord í Noregi árið 1992. Togarinn, sem er 1.217 brl. að … Halda áfram að lesa Vigri RE 71 í slipp →