2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Maggi Jóns tók þessa mynd af Jökli ÞH 299 í Hafnarfirði en báturinn hefur legið þar undanfarnar vikur en er nú farinn af stað. Held ég. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 … Halda áfram að lesa Jökull ÞH 299
Jón Ásbjörnsson RE 777
2755. Jón Ásbjörnsson RE 777 ex Ragnar SF 550. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2021. Sigurður Davíðsson tók þessa mynd í dag af línubátnum Jóni Ásbjörnssyni RE 777 koma til hafnar í Þorlákshöfn. Jón Ásbjörnsson RE 777 var smíðaður í Bátagerðinni Samtak árið 2008 og er af gerðinni Víkingur 1200. Báturinn var smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Vigur ehf. … Halda áfram að lesa Jón Ásbjörnsson RE 777
Hafrafell SU 65
2912. Hafrafell SU 65 ex Hulda GK 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línubáturinn Hafrafell SU 65 kemur hér að landi í Grindavík á dögunum en báturinn var smíðaður hjá Seiglu á Akureyri fyrir BG Nes ehf. á Siglufirði. Báturinn hét Oddur á Nesi SI 76 og kom til heimahafnar á Siglufirði upp úr miðjum janúar … Halda áfram að lesa Hafrafell SU 65
Aðalbjörg RE 5
1755. Aðalbjörg RE 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Það er gaman að taka lóðréttar bátamyndir annað slagið og innsiglingin til Sandgerðishafnar er tilvalin til þess háttar myndatöku. Hér er það Aðalbjörg RE 5 sem sigldi fyrir linsuna en stutt er síðan myndir úr þessari seríu birtust. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Aðalbjörg RE 5
Dóri GK 42 kemur að landi í Sandgerði
2604. Dóri GK 42 ex Óli G HF 22. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línubáturinn Dóri GK 42 kemur hér að landi í Sandgerði fyrir helgi en það er Nesfiskur sem gerir bátinn út. Báturinn var smíðaður hjá Samtak í Hafnarfirði árið 2004 og hét upphaflega Keilir II AK 4. Hann var í eigu samnefnds fyrirtækis á … Halda áfram að lesa Dóri GK 42 kemur að landi í Sandgerði
Klettur ÍS á sæbjúgnaveiðum
1426. Klettur ÍS 808 ex Klettur MB 8. Ljósmynd Þór Jónsson 2021. Þór Jónsson sendi mér þessa mynd sem hann tók í morgun undan Berufirði og sýnir hún Klett ÍS 808 að sæbjúgnaveiðum. Það er Áurora Seafood ehf. sem gerir bátinn út en upphaflega hét hann Hvanney SF 51 og var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar … Halda áfram að lesa Klettur ÍS á sæbjúgnaveiðum
Særif kemur að landi í Sandgerði
2822. Særif SH 25 ex Hálfdán Einarsson ÍS 128. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línubáturinn Særif SH 25 kom til hafnar í Sandgerði sl. föstudag og þá voru þessar myndir teknar af bátnum. Særif SH 25 hét upphaflega Hrólfur Einarsson ÍS 255 og var í eigu Völusteins ehf. í Bolungarvík. Hrólfur Einarsson ÍS 255 var smíðaður árið … Halda áfram að lesa Særif kemur að landi í Sandgerði
Benni Sæm GK 26
2430. Benni Sæm GK 26 ex Sæljón RE 19. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Benni Sæm GK 26 kemur hér að landi í Sandgerði en hann er gerður út af Nesfiski til dragnótaveiða. Benni Sæm er einn hinna svokölluðu Kínabáta sem smíðaðir voru í Dalian í Kína og komu til landsins á árinu 2001. Hann hét … Halda áfram að lesa Benni Sæm GK 26
Grímsnes GK 555
89. Grímsnes GK 555 ex Grímsnes BA 555. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Grímsnes GK 555 kemur hér að landi í Njarðvík fyrir helgi en báturinn er gerður út af Maron ehf. til netaveiða. Upphaflega hét báturinn Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði, smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk As í Noregi 1963 fyrir Varðarútgerðina hf á … Halda áfram að lesa Grímsnes GK 555
Kristján HF 100 kemur að landi
2961. Kristján HF 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línubáturinn Kristján HF 100 kemur hér að landi í Grindavík í sl. föstudagskvöld en hann er gerður út af Fiskvinnslunni Kambi hf. í Hafnarfirði. Kristján HF 100 er yfirbyggður Cleopatra 46B beitningavélarbátur frá Trefjum sem var afhentur sumarið 2018. Báturinn er 14 metrar að lengd og mælist … Halda áfram að lesa Kristján HF 100 kemur að landi









