Jökull landaði úr sinni fyrstu veiðiferð

2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línu- og netaskipið Jökull ÞH 299 kom til löndunar á Húsavík í morgun. Jökull, sem er á netum og lagði þau að þessu sinni í Breiðafirði, var í sinni fyrstu veiðiferð þar sem verið var að prufa skipið og útbúnað þess. Að sögn … Halda áfram að lesa Jökull landaði úr sinni fyrstu veiðiferð →

Kópur við bryggju á Kópaskeri

1228. Kópur ÞH 187 ex Brynjar VE 321. Ljósmynd Sigurgeir Harðarson. Kópur ÞH 187 var keyptur til Kópaskers árið 1976 og gerður út þaðan til ársins 1981. Hann var keyptur frá Vestmannaeyjum þar sem hann bar nafnið Brynjar VE 321. Upphaflega hét báturinn Kolbeinn í Dal ÍS 82 og var smíðaður 1972 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar … Halda áfram að lesa Kópur við bryggju á Kópaskeri →

Strandveiðibátur í Húsavíkurhöfn

Frá Húsavíkurhöfn 2. maí 2021. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd var tekin sl. sunnudag þegar strandveiðisjómenn voru að undirbúa sig fyrir fyrsta róður tímabilsins en hefja mátti veiðar 3. maí. Þarna má sjá Jón Jak ÞH 8 fara frá bryggjunni eftir að hafa tekið ís en það er Guðmundur Annas Jónsson sem gerir hann út. … Halda áfram að lesa Strandveiðibátur í Húsavíkurhöfn →

Svala Dís KE 29

1666. Svala Dís KE 29 ex Gullfaxi II GK 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Grásleppubáturinn Svala Dís KE 29 kemur hér að landi í Sandgerði fyrir skömmu en báturinn er gerður út af FREYR-freshfish ehf. og heimhöfn hans Keflavík. Báturinn var smíðaður árið 1983 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd. Upphaflega hét báturinn Stakkur RE … Halda áfram að lesa Svala Dís KE 29 →

Loran á Akureyri

IMO 9191357. Loran M-12-G. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2021. Línu- og netaskipið Loran M-12-G frá Álasundi til Akureyrar fyrir skömmu á leið sinni á Grænlandsmið. Var hann að taka olíu, vatn og vistir. Loran er 51 metrar að lengd, 11 metra breiður og mælist 1,292 brúttótonn að stærð. Skipið var smíðað í Solstrand AS árið 1999. … Halda áfram að lesa Loran á Akureyri →

Hafborg NS 48

7015. Hafborg NS 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hafborg NS 48 var smíðuð í bátasmiðjunni Mótun árið 1987 fyrir Vopnfirðingana Guðna Þ. Sigurðsson og Einar Guðnason. Hafborgin, sem sést á myndinni koma til hafnar í Sandgerði um árið, var Gáski 1000. Hún var tæpar 10 brl. að stærð og búin 271 hestafla Mermaidvél. Hafborg var seld … Halda áfram að lesa Hafborg NS 48 →