Maliina Ittuk

IMO 9987988. Maliina Ittuk. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026.

Hér gefur að líta grænlensku farþegaferjuna Maliina Ittuk við bryggju í Grindavík um helgina.

Jón Steinar tók myndina og meðfylgjandi texta skrifaði hann á síðu sína Báta og bryggjurölt:

Þetta ku vera stærsta farþegaskip Grænlands í innanlands dagsferðum hjá þeim og einnig fyrsta nýsmíðin fyrir þá í áratugi.

Skipið er nánast nýtt en það var tekið í notkun á síðasta ári og er búið hybrid búnaði sem gerir því kleift að sigla á díseldrifnu kerfi eða algjörlega rafdrifið.

Maliina Ittuk var smíðuð í Danmörku. Verkefnið hófst hjá Assens Skibsværft skipasmíðastöðinni í bænum Assens á Fjóni þar sem skipsskrokkurinn og megnið af skipinu var byggt.

Þegar svo skipasmíðastöðin lenti í erfiðleikum árið 2023 tók Faaborg Værft skipasmíðastöðin í Faaborg við verkefninu og lauk smíðinni. Skipið er sérstaklega hannað til siglinga í ís og norðurslóðaaðstæður.

Skipið tekur 113 farþega og 4 í áhöfn og er 38,2 metrar á lengd og 7,2 metrar á breiddina.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd