Jakob Valgeir ÍS 84

977. Jakob Valgeir ÍS 84 ex Arnarnes HF 52. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson.

Jakob Valgeir ÍS 84 frá Bolungarvík er hér á síldarmiðunum fyrir austan upp úr 1980, sennilega 1982.

Báturinn hét upphaflega Búðaklettur GK 251 og var smíðaður í Noregi árið 1964 fyrir Jón Gíslason sf. í Hafnarfirði. Nánar tiltekið hjá Ankerlokken Verft A/S í Florö. 

Báturinn bar síðan nöfnin Venus GK 519, Arnarnes HF 52, Arnarnes GK 50 og Arnarnes ÍS 400 áður en hann fékk nafnið Jakob Valgeir ÍS 84 árið 1978 með heimahöfn í Bolungarvík.

Árið 1984 fékk báturinn nafnið Flosi ÍS 15 og bar það nafn bar þegar hann var seldur til Kamerún árið 1997.

Í Kamerún fékk Flosi nafnið Sandrine.

Haukur Sigtryggur sendi miða:

Búðaklettur GK 251. Útg: Jón Gíslason s.f. Hafnarfirði. (1964 – 1970).
Venus GK 519.Útg: Fiskveiðifélagið Venus h.f. Hafnarfirði. (1970 – 1974).
Venus GK 519. Útg: Íshúsfélag Hafnarfjarðar h.f. Hafnarfirði. (1974).

Arnarnes HF 52. Útg: Íshúsfélag Hafnarfjarðar h.f. Hafnarfirði.(1974 – 1977).
Arnarnes GK 50. Útg: Íshúsfélag Hafnarfjarðar h.f. Hafnarfirði. (1977).
Arnarnes ÍS 400. Útg: Baldur h.f. Guðfinnur Einarsson. Bolungarvík. (1978).

Jakob Valgeir ÍS 84. Útg: Finnbogi Jakobsson o.fl. Bolungarvík. (1978 – 1984).
Flosi ÍS 15. Útg: Græðir h.f. Bolungarvík. (1984 – 1997).
Seldur úr landi 25.04.1997.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd