Gestur í Jörfa

6047. Gestur í Jörfa ex Kötluvík ÞH 31. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Gestur í Jörfa hét upphaflega Páll ÞH 334 og var smíðaður hjá Mótun árið 1979 fyrir Pál Magnússon og Björn Sigurðsson á Húsavík.

Árið 1987 fékk hann nafnið Byr ÞH 31 sem hann bar til ársins 1996 en þá fékk hann nafnið Kötluvík ÞH 31. Kötluvík var fyrst með heimahöfn í Núpskötlu á Melrakkasléttu en frá árinu 2009 var heimahöfnin Kópasker.

Báturinn, sem er skráður skemmtibátur, er í dag í eigu Sörens Gestssonar á Húsavík sem nefndi hann eftir föður sínum, Gesti Halldórssyni, sem kenndur var við Jörfa á Húsavík.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd