2711. Særún EA 251 ex Elli P SU 206. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Særún EA 251 kemur hér til hafnar á Árskógssandi í gærmorgun en hún er á handfæraveiðum. Báturinn, sem er af gerðinni Siglufjarðar-Seigur, var smíðaður á Siglufirði árið 2007 og hét upphaflega Lúkas ÍS 71 og var í eigu Álfsfells ehf. á Ísafirði. … Halda áfram að lesa Særún EA 251
Rósborg SI 29
6579. Rósborg SI 29 ex Rósborg ÍS 29. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Strandveiðibáturinn Rósborg SI 29 kemur hér úr róðri í gær Ólafur Baldur Gunnarsson gerir hann út frá Siglufirði. Rósborg hét upphaflega Silvía HF 152 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1984. Árið 1998 var hann keyptur til Suðureyrar við Súgandafjörð þar … Halda áfram að lesa Rósborg SI 29
Oddur á Nesi kemur að landi
2585. Oddur á Nesi ÓF 176 ex Hafrún ÍS 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Oddur á Nesi ÓF 176 kemur hér að landi á Siglufirði í dag en hann rær með línu. Oddur á Nesi hét upphaflega Venni GK 167 og átti heimahöfn í Grindavík. Síðar Ragnar SF 550, því næst Guðmundur Sig. SF 650. … Halda áfram að lesa Oddur á Nesi kemur að landi
Berglín heldur til veiða
1905. Berglín GK 300 ex Jöfur ÍS 172. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Rækjutogarinn Berglín GK 300 landaði á Siglufirði í dag og voru þessar myndir teknar þegar hún lét aftur úr höfn undir kvöld. Berglín GK 300, sem er í eigu Nesfisks hf. í Garði, var smíðuð í skipasmíðastöðinni Stálvík í Garðabæ og hét upphaflega … Halda áfram að lesa Berglín heldur til veiða
Wilson Nantes við Bökugarðinn
Wilson Nantes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Nantes liggur nú við Bökugarðinn en verið er að skipa upp hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka. Skipið hefur komið til Húsavíkur áður og það í sömu erindagjörðum. Skipið var smíðað árið 2011 og siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Walletta. Það er 123 metra langt og … Halda áfram að lesa Wilson Nantes við Bökugarðinn
Halldór NS 302 kom til Húsavíkur í morgun
2672. Halldór NS 302 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Halldór NS 302 frá Bakkafirði kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum hvar hann var hífður hið snarasta á land til skverunar. Hann er í eigu Halldórs fiskvinnslu ehf. á Bakkafirði sem er í eigu GPG Seafood á Húsavík. … Halda áfram að lesa Halldór NS 302 kom til Húsavíkur í morgun
Harðbakur á útleið frá Grindavík
2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Jón Steinar tók þessar myndir af Harðbak EA 3 þar sem hann var á útleið frá Grindavík síðdegis í dag. Harðbakur hafði komið til hafnar í morgun vegna bilerís og landaði 26 tonnum en togarinn hafði nýhafið veiðiferð þegar bilunin kom upp. 2963. Harðbakur EA 3. … Halda áfram að lesa Harðbakur á útleið frá Grindavík
Suðurey VE 500
1258. Suðurey VE 500 ex Gunnar Jónsson VE 500. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Suðurey VE 500 hét upphaflega Gunnar Jónsson VE 500 og var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1972. Báturinn, sem var 147 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Jón Valgarð Guðjónsson, Vestmannaeyjum og Ísfell hf. Reykjavík. Árið 1974 var Gunnar Jónsson VE 500 … Halda áfram að lesa Suðurey VE 500
Andvari ÞH 81
278. Andvari ÞH 81 ex TH 81. Ljósmynd Pétur Jónasson. Andvari ÞH 81 vel hlaðinn í Húsavíkurhöfn um árið, Ómar Vagns fram á og Siggi í Hlíð upp á lúkarskappanum. Held ég. Báturinn var smíðaður á Akureyri 1942 og hét upphaflega Baldvin Þorvaldsson EA 721 frá Dalvík. Hann var smíðaður í Skipasmíðastöð KEA fyrir Baldvin, … Halda áfram að lesa Andvari ÞH 81
Þengill ÞH 114
1099. Þengill ÞH 114 ex Kópur ÞH 114. Ljósmynd Pétur Jónasson. Þengill ÞH 114 vel hlaðinn þarna en myndina tók Pétur Jónasson ljósmyndari á Húsavík. Ef mér skjöplast ekki eru þetta Hörður Arnórsson og Kristján Björnsson þarna fram á og Guðjón bróðir hans í brúnni. Þengill ÞH 114 var smíðaður á Akureyri árið 1970 fyrir … Halda áfram að lesa Þengill ÞH 114









