Náttfari á landleið

993. Náttfari kemur úr hvalaskoðunarferð í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Náttfari er hér á landleið úr hvalaskoðunarferð á Skjálfanda í dag. Náttfari var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1965 og hét upphaflega Þróttur SH 4.  Þróttur, sem var fyrsti báturinn sem Skipavík smíðaði, hét ýmsum nöfnum í gegnum tíðina en Norðursigling keypti bátinn árið … Halda áfram að lesa Náttfari á landleið →

Hvalaskoðunarbátar á Skjálfanda

Hvalaskoðunarbátar á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Á þessari mynd sem tekin var um hádegisbil má sjá þrjá hvalaskoðunarbáta halda út á Skjálfandsa með ferðamenn. Þetta eru fv. Faldur, Andvari og RIB báturinn Kjói. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can … Halda áfram að lesa Hvalaskoðunarbátar á Skjálfanda →

Gullberg VE 292

2730. Gullberg VE 292 ex Gardar H-34-AV. Ljósmynd Óskar Franz 2022. Óskar Franz tók á dögunum þessar flottu myndir af Gullberginu VE 292, nýja uppsjávarveiðiskipi Vinnslustöðvarinnar, sem áður hét Gardar H-34-AV. Á vef VSV segir ma. um skipið: Gullberg er gríðarlega öflugt skip, smíðað árið 1998 en er mikið endurnýjuð í stóru og smáu, vel … Halda áfram að lesa Gullberg VE 292 →

Sævaldur ÞH 216 kemur til hafnar

6790. Sævaldur ÞH 216 ex Hafey SK 194. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Sævaldur ÞH 216 kemur hér til hafnar á Húsavík í vikunni en það er Einar Ófeigur Magnússon sem á hann og gerir út. Sævaldur hét upphaflega Gunnar HF 139 og var smíðaður í Garðarbæ árið 1986. Á vefnum aba.is má lesa um … Halda áfram að lesa Sævaldur ÞH 216 kemur til hafnar →

Wilson Norfolk

IMO 9430997. Wilson Norfolk. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Wilson Norfolk var hér í vikunni en það lá fyrst við festar hér framundan víkinni meðan verið var að skipa upp úr Zaanborg við Bökugarðinn. Skipið, sem kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka, var smíðað árið 2011. Það siglir undir fána Möltu og er með … Halda áfram að lesa Wilson Norfolk →

Silver Whisper

 IMO 9192179. Silver Whisper. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Farþegaskipið Silver Whisper hefur legið við ankeri hér út af Húsavíkur síðan í morgun og fyrst um sinn sást nú lítið til þess vegna þoku. Þokulúðus skipsins var þeyttur reglulega enda léttabátar þess að flytja farþega til lands og aftur út í skip. En það létti nú … Halda áfram að lesa Silver Whisper →

Lundey ÞH 350

6961. Lundey ÞH 350 ex Gáski AK 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Lundey ÞH 350 kemur hér að landi á Húsavík í gærmorgun. Lundey hét upphaflega Gáski AK 20 og var smíðuð í Bátasmiðjunni Mótun hf. í Hafnarfirði árið 1987. Kristbjörn Árnason keypti bátinn til Húsavíkur árið 1991 en Árni Björn sonur hans gerir … Halda áfram að lesa Lundey ÞH 350 →

Seven Seas Splendor og hvalaskoðunarbátar

IMO 9807085. Seven Seas Splendor - 260. Garðar. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Skemmtiferðaskipið Seven Seas Splendor hafði viðdvöl á Skjálfanda í dag hvar farþegar þess voru fluttir í land á Húsavík með léttbátum. Meðfylgjandi myndir voru teknar í morgun þegar hvalaskoðunarbátar lögðu upp í ferðir á Skjálfanda og eflaust farþegar af Seven Seas Slendor um … Halda áfram að lesa Seven Seas Splendor og hvalaskoðunarbátar →

Salka á leið í hvalaskoðun

1470. Salka ex Pétur afi SH 374. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Eikarbáturinn Salka er hér á leið í hvalaskoðun frá Húsavík í morgun en hún aftur siglinga á dögunum eftir nokkurt hlé. Salka var smíðuð í Skipasmíðastöðinni Dröfn h.f í Hafnarfirði árið 1976 og hét upphaflega Hafsúlan SH 7.  Haustið 1983 fékk báturinn nafnið Már NS … Halda áfram að lesa Salka á leið í hvalaskoðun →