Á Siglufirði

Frá Siglufirði. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Á þessari mynd sem tekin var á Siglufirði 1988 eða níu má sjá fremsta Guðrúnu Jónsdóttur SI 155 sem upphaflega hét Jón Helgason ÁR 12. Í bakgrunni má sjá togarann Siglfirðing SI 150 og Höfrung III ÁR 250 sem var verið að yfirbyggja þarna við bryggjuna. Utan á honum liggur … Halda áfram að lesa Á Siglufirði

Elías Guðmundsson ÍS 9

2790. Elías Guðmundsson ÍS 9 ex Halldór NS 302. Ljósmynd Vigfús Markússon. Elías Guðmundsson ÍS 9 hét upphaflega Einar Hálfdáns ÍS 11 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 2009. Árið 2021 fékk báturinn nafnið Áki í Brekku SU 760 með heimahöfn á Breiðadalsvík og síðar sama ár varð hann Halldór NS 302 með … Halda áfram að lesa Elías Guðmundsson ÍS 9

Héðinn

1010. Héðinn ex Héðinn Valdimarsson. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Héðinn sem siglir hér til hafnar á Húsavík vorið 2007 hét upphaflega Héðinn Valdimarsson og var smíðaður fyrir Olíverslun Íslands hf. í Noregi árið 1966. Þegar þarna var komið í sögu bátsins, sem var 86 brl. að stærð, var hann í eigu Arnars Sigurðssonar á Húsavík … Halda áfram að lesa Héðinn

Hulda Björnsdóttir GK 11

3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Hulda Björnsdóttir GK 11 leggur hér upp í veiðiferð frá Grindavík sl. þriðjudag eftir að hafa landað um 112 tonn tonna afla sínum fyrr um daginn. Til fróðleiks má geta þess að togarinn landaði rétt rúmum 5000 tonnum í Grindavíkurhöfn á síðastliðnu ári. Hulda Björnsdóttir … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11

Kristbjörg VE 70

1135. Kristbjörg VE 70 ex Þórunn Sveinsdóttir VE 901. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Kristbjörg VE 70 hét upphaflega Þórunn Sveinsdóttir VE 401 og var smíðuð fyrir Ós hf. í Stálvík í Garðarbæ 1971.  Báturinn var yfirbyggður, lengdur og skipt um brú á þeim tíma sem hann bar nafnið Þórunn Sveinsdóttir. Vinnslustöðin kaupir bátinn árið 1992 þegar … Halda áfram að lesa Kristbjörg VE 70