Afi ÍS 89

1932. Afi ÍS 89 ex NúNú ÍS 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Strandveiðibáturinn Afi ÍS 89 kemur hér til hafnar á Suðureyi í dag en báturinn, sem er 9,6 brl. að stærð, hét upphaflega Anna Rósa NK 27 og var smíðaður í Hafnarfirði árið 1988.

Anna Rósa var með heimahöfn á Neskaupstað til ársins 2002 en þá var hún skráð í Hafnarfirði og varð HF 15.

Síðar það sama ár fékk báturinn nafnið Æður ST 41 með heimahöfn á Drangsneni hvar hún var til ársins 2010 en þá var báturinn seldur á Akranes.

Þar fékk báturinn nafnið Sigrún AK 71 en ári síðar var Sigrún orðin ÍS 717 með heimahöfn á Flateyri. Ekki stóð það lengi því um haustið 2012 fékk báturinn nafnið NúNú ÍS 99 með heimahöfn í Bolungarvík.

Það var svo vorið 2015 sem báturinn fékk nafnið Afi ÍS 89 með heimahöfn á Suðureyri við Súgandafjörð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd