Sæli við bryggju á Suðureyri

2736. Sæli BA 333 (Nú ÍS 268) ex Steinunn HF 108. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Sæli sem liggur hér við bryggju á Suðureyri hét upphaflega Sigrún Hrönn ÞH 36 og var smíðaður hjá Trefjum og kom báturinn í fyrsta skipti til heimahafnar á Húsavík þann 23. júní 2007.

Báturinn var seldur Melnesi ehf. haustið 2012 og hafði borið nafnið Hrönn ÞH 361 í nokkra daga þar á undan en fékk nafnið Sæbliki SH 15 með heimahöfn á Hellissandi.

Vorið 2015 fékk báturinn nafnið Steinunn HF 108 og þrem árum síðar nafnið Sæli BA 333.

Seint á síðasta ári fékk báturinn skráninguna Sæli ÍS 268 en hann er í eigu Steglu ehf.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd