Eyrarröst ÍS 201

2625. Eyrarröst ÍS 201 ex Sigurey HF 211. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Strandveiðibáturinn Eyrarröst ÍS 201 kemur hér að landi á Suðureyri í dag en hann hét upphaflega Sómi HF 100 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 2004.

Síðar sama ár fékk báturinn nafnið Hólmarinn SH 114 með heimahöfn í Stykkishólmi.

Sumarið 2019 fékk báturinn nafnið Sigurey HF 211 en um haustið fékk hann nafnið Eyrarröst ÍS 201 með heimahöfn á Suðureyri.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd