
Hér gefur að líta Torfa Björnsson ÍS 16 við bryggju á Flateyri í dag en það er Tjaldtangi ehf. sem gerir hann út.
Tjaldtangi keypti bátinn frá Patreksfirði í vor en þar bar hann nafnið Patrekur BA 64 og hafði gert frá árinu 2015.
Upphaflega og lengst af hét báturinn Haukaberg SH 20 en hann var smíðaður árið 1974 í skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution