
Línubáturinn Gjafar ÍS 72 kemur hér til hafnar á Suðureyri í gær en hann er gerður út af RSG útgerð ehf.
Gjafar hét upphaflega Kópur HF 202 og var smíðaður í Noregi árið 1990.
Sama ár var báturinn seldur til Ólafsvíkur þar sem hann fékk nafnið Jói á Nesi SH 159.
Hann var lengdur árið 1991 og er tæpar 12 brl. að stærð eftir það.
Frá Ólafsvík fór báturinn til Bíldudals þar sem hann fékk nafnið Brík BA 2.
Árið 2001 fékk báturinn nafnið Júlíus Garðar ÁR 111 sem hann hét til ársins 2004.
Það ár var báturinn seldur til Stöðvarfjarðar þar sem hann fékk nafnið Gjafar SU 90.
Síðar varð Gjafar GK 105, NS 80 en frá árinu 2021 er Gjafar ÍS 72.




Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution