
Strandveiðibáturinn Ása Bjarney HF 31 hét upphaflega Kristín Finnbogadóttir BA 95 frá Patreksfirði og var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Mótun hf. í Hafnarfirði árið 1988.
Árið 2001 fékk báturinn nafnið Siggi Breiðfjörð KE 76 með heimahöfn í Keflavík og tveim árum síðar var hann kominn í Sandgerði undir nafninu Muninn GK 342.
Ekki var það lengi því árið 2004 var báturinn seldur norður í Skagafjörð þar sem hann fékk nafnið Óskar SK 13. Fyrstu fjögur árin var hann með heimahöfn á Hofsósi en upp frá því á Sauðárkróki.
Það var svo síðla árs 2023 að báturinn fékk nafnið Vestmann GK 21 með heimahöfn í Sandgerði en frá haustinu 2025 hefur hann borið nafnið Ása Bjarney HF 31.


Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution