Sæli við bryggju á Suðureyri

2736. Sæli BA 333 (Nú ÍS 268) ex Steinunn HF 108. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæli sem liggur hér við bryggju á Suðureyri hét upphaflega Sigrún Hrönn ÞH 36 og var smíðaður hjá Trefjum og kom báturinn í fyrsta skipti til heimahafnar á Húsavík þann 23. júní 2007. Báturinn var seldur Melnesi ehf. haustið 2012 og … Halda áfram að lesa Sæli við bryggju á Suðureyri →

Eyrarröst ÍS 201

2625. Eyrarröst ÍS 201 ex Sigurey HF 211. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Strandveiðibáturinn Eyrarröst ÍS 201 kemur hér að landi á Suðureyri í dag en hann hét upphaflega Sómi HF 100 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 2004. Síðar sama ár fékk báturinn nafnið Hólmarinn SH 114 með heimahöfn í Stykkishólmi. Sumarið 2019 fékk … Halda áfram að lesa Eyrarröst ÍS 201 →

Jóhanna

1076. Jóhanna BA ex Jóhanna Gísladóttir GK 557. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Hér gefur að líta Jóhönnu BA á siglingu í dag en hún þjónustar fiskeldið á Vestfjörðum og gerð út af Skeggja ehf. á Bíldudal. Jóhanna hét upphaflega Helga Guðmundsdóttir BA 77 var smíðuð í skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi. Hún var smíðuð … Halda áfram að lesa Jóhanna →

Einar Guðnason ÍS 303

2997. Einar Guðnason ÍS 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Línubáturinn Einar Guðnason ÍS 303 kemur hér úr róðri í dag en hann er gerður út frá Suðureyri við Súgandafjörð. Það er Útgerðarfélagið Norðureyri ehf. sem gerir Einar Guðnason út en hann kom í stað eldri báts sem strandaði við Gölt síðla árs 2019. Báturinn var … Halda áfram að lesa Einar Guðnason ÍS 303 →

Ásgeir og Mardís

11790. Ásgeir ÞH 198 - 6425. Mardís ÞH 151. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það er vorbragur í þessari mynd sem tekin var í lok grásleppuvertíðar á Húsavík upp úr aldamótunum síðustu. Þarna eru kallarnir á Ásgeir ÞH 198 að draga netin upp á bryggju og Mardísin liggur utan á honum. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Ásgeir og Mardís →

Egill ÍS 77

2340. Egill ÍS 77 ex Ásdís ÍS 402. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Dragnótabáturinn Egill ÍS 77 baðar hér sig í kvöldsólinni á Þingeyri við Dýrafjörð sem er hans heimahöfn. Egill ÍS 77 hét upphaflega Friðrik Bergmann SH 240 frá Ólafsvík og var smíðaður í Ósey í Hafnarfirði árið 1999. Hann var skutlengdur árið 2008. Báturinn … Halda áfram að lesa Egill ÍS 77 →