Stjörnutindur SU 159

1143. Stjörnutindur SU 159 ex Lýtingur NS 250. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Rækjubáturinn Stjörnutindur SU 159 frá Djúpavogi togar hér á rækjuslóðinni um árið. Báturinn hét upphaflega Gissur ÁR 6 á íslenskri skipaskrá og um hann má lesa hér. Báturinn var smíðaður árið 1966 í Noregi en Baldur Karlsson í Þorlákshöfn keypti hann til landsins árið … Halda áfram að lesa Stjörnutindur SU 159 →

Björgmundur ÍS 49

2690. Björgmundur ÍS 49 ex Karólína ÞH 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Línubáturinn Björgmundur ÍS 49 kemur hér að landi í Sandgerði vorið 2008 en hann var með heimahöfn í Bolungarvík. Báturinn hét upphaflega Dodda ÞH 111 frá Húsavík og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 2005. Í nóvember árið 2007 var Karólína seld … Halda áfram að lesa Björgmundur ÍS 49 →

Vonin

1631. Vonin KE 10 ex Lundaberg AK 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Vonin frá Keflavík hefur verið á Húsavík frá því í lok nóvember á síðasta ári en Köfunarþjónusta Sigurðar er að vinna við dráttarbrautina í Húsavíkurslipp. Þessar myndir voru teknar í dag en Vonin hét upphaflega Fálkinn NS 325 og var smíðaður í Bátalóni árið … Halda áfram að lesa Vonin →

Guðbjartur ÍS 16

1302. Guðbjartur ÍS 16. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ísafjarðartogarinn Guðbjartur ÍS 16 liggur hér við slippkantinn á Akureyri og árið gæti verið 1984 eða svo. Guðbjartur ÍS 16 var smíðaður í Flekkefjørd í Noregi fyrir Hraðfrystihúsið Norðurtanga hf. á Ísafirði. Var hann þriðja skipið sem smíðað var þar fyrir fyrirtækið. Hin voru Víkingur III ÍS 280 … Halda áfram að lesa Guðbjartur ÍS 16 →

Fossá

2404. Fossá ÞH 362. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kúfiskveiðiskipið Fossá ÞH 362 frá Þórshöfn kemur hér að bryggju á Húsavík um árið. Fossá ÞH 362 var smíðuð í fyrir Hraðfrystistöðvar Þórshafnar og kom hún til heimahafnar á Þórshöfn í febrúarmánuði árið 2001. Skipið var smíðað í Huangpu-skipasmíðastöðinni í Gung Zhou í Kína. Í dag heitir skipið Grettir … Halda áfram að lesa Fossá →