Albert GK 31

1046. Albert GK 31 ex Birtingur NK 119. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Loðnuskipið Albert GK 31 hét upphaflega Birtingur NK 119 og var smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrik Verksted A/S í Flekkefjord í Noregi árið 1967.

Birtingur var smíðaður fyrir Síldarvinnsluna h/f í Neskaupstað

Þróttur h/f Grindavík kaupir Birting í árslok 1972 og fær hann þá nafnið Albert GK 31.

Það nafn bar hann til ársins 1996 er hann verður Oddeyrin EA 210. Fyrst í eigu samnefnds fyrirtækis en ári síðar í eigu Samherja h/f.

Oddeyrin var seld til Danmerkur þar sem hún fór í brotajárn árið 2005.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd