IMO 9195690. Fri Ocean ex Vera. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Fri Ocean kom til Húsavíkur í vikunni og lagðist að við Bökugarðinn hvar skipað var upp hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka. Fri OCean var smíðað í Hollandi árið 2000 og hét Vera fysrtu sex árin en skipið siglir undir fána Bahamas með heimahöfn í … Halda áfram að lesa Fri Ocean við Bökugarðinn
Knörrinn
306. Knörrinn ex Hrönn EA 258. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér Knörrrinn á landleið um árið en hvaða ár man ég ekki, bara að það er langt síðan. Knörrinn var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1963 og hét upphaflega Auðunn EA 157 með heimahöfn í Hrísey. Eftir að hafa verið gerður út til fiskveiða í … Halda áfram að lesa Knörrinn
Sigurfari VE 138
1743. Sigurfari VE 138 ex Glomfjord. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sigurfari VE 138 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum en Tryggvi Sig tók myndina. Sigurfari hét Glomfjord þegar Vestmannaeyingarnir festu kaup á honum frá Svíþjóð árið 1986. Báturinn var smíðaður í Strandby Skibsværft A/S, Strandby í Danmörku árið 1984, og er smíðanúmer 79 hjá stöðinni. Byggt … Halda áfram að lesa Sigurfari VE 138
Runólfur
Komið með Runólf SH 135 að bryggju í gær. Ljósmynd Magnús Jónsson. Maggi Jóns tók þessa mynd þegar dráttarbátar Faxaflóahafna komu Runólfi SH 135 að bryggju í Reykjavík í gær. Varðskipið Þór hafði dregið hann til Reykjavíkur en gír Runólfs bilaði. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. … Halda áfram að lesa Runólfur
Kristbjörg og Ögmundur
1009. Kristbjörg ÞH 44 ex Kristbjörg II ÞH 44 - 212. Ögmundur RE 94 ex Skagaröst KE 70. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1993. Hér liggja saman í Húsavíkurhöfn Kristbjörg ÞH 44 og Ögmundur RE 94 og myndin tekin sumarið 1993 ef minni ljósmyndarans svíkur hann ekki. Báðir bátarnir smíðaðir á sjöunda áratug síðustu aldar í Risør … Halda áfram að lesa Kristbjörg og Ögmundur
Háey I í Húsavíkurhöfn
2995. Háey I ÞH 295. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Línubátur GPG Seafood, Háey I ÞH 295, er hér að taka olíu í Húsavíkurhöfn á dögunum en hún hefur róið héðan að undanförnu. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them … Halda áfram að lesa Háey I í Húsavíkurhöfn
Hinni og Faldur
1547. Hinni ÞH 70 - 1267. Faldur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Hér liggja Hinni og Faldur saman við bryggju á Húsavík sumarið 2006. Hinni ÞH 70 heitir í dag Draumur og er gerður út til hvalaskoðunar frá Dalvík og Faldur siglir enn á hvalaslóðir Skjálfandaflóa. Með því að smella á myndina er hægt að skoða … Halda áfram að lesa Hinni og Faldur
Egill SH 195
1246. Egill SH 195 ex Tungufell SH 31. Ljósmynd Hafþór Hreiðarssonn 2022. Ólafsvíkurbáturinn Egill SH 195 er hér upp í Slippnum á Akureyri á dögunum en hann hét upphaflega Fylkir NK 102 og var smíðuð í Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. árið 1972 fyrir Drift hf. í Neskaupstað. Báturinn, sem upphaflega var 92 brl. að stærð var … Halda áfram að lesa Egill SH 195
Sören ÞH 260
1234. Sören ÞH 260 ex Grettir SH 195. Ljósmynd Pétur Jónasson. Sören ÞH 260 var í flota Húsavíkur árin 1973-1975 en bátinn keyptu Baldur Karlsson og Geirfinnur Svavarsson frá Stykkishólmi. Sören, sem var 6 brl. að stærð, hét upphaflega Grettir SH 195 og var smíðaður í Stykkishólmi af Kristjáni J. Guðmundssyni. Eftir að báturinn fór … Halda áfram að lesa Sören ÞH 260
Höfrungur II GK 27
120. Höfrungur II GK 27 ex Höfrungur II AK 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Netabáturinn Höfrungur II GK 27 kemur hér að landi í Grindavík um árið en báturinn hét upphaflega Sangolt og var smíðaður árið 1957 í Avaldsnes í Noregi. Sangolt var keyptur til landsins árið 1960 af Haraldi Böðvarssyni & Co á Akranesi og … Halda áfram að lesa Höfrungur II GK 27









