Guðbjörg GK 517

1262. Guðbjörg GK 517 ex  Óskar ÍS 68. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Guðbjörg GK 517 kemur hér að landi í Reykjavík um árið en þar átti báturinn lengi heimahöfn sem Rúna RE 150. Báturinn hét upphaflega Sjöfn ÞH 142 og var smíðuð 1972 fyrir Sjöfn s/f á Grenivík af Bátasmiðjunni Vör h/f á Akureyri. Hér má lesa sögu … Halda áfram að lesa Guðbjörg GK 517

Maya

Maya TF-94-NK. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Maggi Jóns sendi þessar myndir af nýjum og glæsilega rauðum bát í Hafnarfjarðarhöfn. Maya TF-94-NK heitir hann og er með heimahöfn í Hammefest í Noregi. Maya er af gerðinni Cleopatra 36 og smíðuð hjá Trefjum í Hafnarfirði. Maya TF-94-NK. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Maya TF-94-NK. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. … Halda áfram að lesa Maya

Ísleifur VE 63 á loðnumiðunum í dag

2388. Ísleifur VE 63 ex Ingunn AK 150. Ljósmynd Þorsteinn Eyfjörð Friðriksson 2023. Þorsteinn Eyfjörð skipverji á Hákoni EA 148 tók þessa mynd af Ísleifi VE 63 á loðnumiðunum í þessum skrifuðu orðum. Hákon, sem fékk 800 tonna kast í gær, þáði 2-300 tonn af mjög góðri loðnu úr nótinni hjá Ísleifi. 2388. Ísleifur VE … Halda áfram að lesa Ísleifur VE 63 á loðnumiðunum í dag

Portland VE 97

2101. Portland VE 97 ex Gulltoppur ÁR 321. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Portland VE 97 hét áður Gulltoppur ÁR 321 eins og kom fram hér á síðunni um helgina en ber nafnið Ölver í dag. Skipasmiðjan Hörður í Njarðvík smíðaði bátinn fyrir Sigurð Kristjónsson útgerðarmann á Hellisandi árið 1990 og fékk hann nafnið Magnús SH 205. … Halda áfram að lesa Portland VE 97

Guðmundur Ólafur ÓF 91

1020. Guðmundur Óafur ÓF 91 ex Krossanes SU 5. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Guðmundur Ólafur ÓF 91 á rækjumiðunum um árið en myndina tók Olgeir Sigurðsson þá skipstjóri á Geira Péturs ÞH 344. Upphaflega hét skipið Börkur NK 122 frá Neskaupstað, smíðaður í Noregi árið 1966.  Árið 1972 fékk hann nafnið Bjarni Ólafsson AK 70, lengt … Halda áfram að lesa Guðmundur Ólafur ÓF 91

Gulltoppur ÁR 321

2101. Gulltoppur ÁR 321 ex Magnús SH 206. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér kemur Gulltoppur ÁR 321 til hafnar í Þorlákshöfn rétt fyrir aldarmótin síðustu en upphaflega hét báturinn Magnús SH 205. Skipasmiðjan Hörður í Njarðvík smíðaði bátinn fyrir Sigurð Kristjónsson útgerðarmann á Hellisandi árið 1990. Upphaflega var Magnús 9,9 brl. að stærð en eftir að … Halda áfram að lesa Gulltoppur ÁR 321

Fleiri myndir af Ásdísi ÍS 2

2313. Ásdís ÍS 2 ex Örn GK 114. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hér koma myndir af Ásdísi ÍS 2 koma til hafnar á Húsavík nú síðdegis en báturinn hefur verið við rækjurannsóknir á Skjálfanda sl. tvo daga. Hér má lesa nánar um bátinn sem gerður er út af Mýrarholti ehf. og er með heimahöfn í Bolungarvík. … Halda áfram að lesa Fleiri myndir af Ásdísi ÍS 2

Ásdís ÍS 2 við bryggju á Húsavík

2313. Ásdís ÍS 2 ex Örn GK 114. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Ásdís ÍS 2 við bryggju á Húsavík í kvöld en það er langt síðan ég myndaði þennan bát síðast. Þá hét hann reyndar Örn KE 14 frá Keflavík. Ásdís er gerð út af Mýrarholti ehf. og með heimahöfn í Bolungarvík. Um bátinn má lesa … Halda áfram að lesa Ásdís ÍS 2 við bryggju á Húsavík