Línubáturinn Hulda GK 17 kemur hér til Grindavíkur úr róðri í gær en það er Blakknes ehf. sem gerir bátinn út. Blakknes seldi nýlega BESA ehf. í Grindavík Huldu GK 17 og tók Dúdda Gísla GK 48 upp í og fékk hann nafnið Hulda. Og Hulda fékk nafnið Dúddi Gísla. 2778. Hulda GK 17 ex … Halda áfram að lesa Hulda GK 17
Byr og Vinur á Skjálfanda
6047. Byr ÞH 31 - 1750. Vinur ÞH 73. Ljósmynd PJ 1994. Þessi mynd var tekin sumarið 1994 og er ein fjölmargra mynda sem teknar voru þegar Arnar Sigurðsson fór með hóp ferðamanna að Lundey á Skjálfanda. Þarna var Vinur á landleið og stoppað var við handfærabátinn Byr ÞH 31 en þar um borð voru … Halda áfram að lesa Byr og Vinur á Skjálfanda
Gulltoppur ÁR 321
13. Gulltoppur ÁR 321 ex Snætindur ÁR 88. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Gulltoppur ÁR 321 kemur hér til Þorlákshafnar úr netaróðri á vetrarvertíð árið 2005. Báturinn var lengi vel gerður út frá Þorlákshöfn undir nöfnunum Snætindur ÁR 88, síðar Gulltoppur ÁR 321 og í lokin Litlaberg ÁR 155. Upphaflega hét hann Árni Þorkelsson KE 46 … Halda áfram að lesa Gulltoppur ÁR 321
Arnarnúpur ÞH 272
1556. Arnarnúpur ÞH 272 ex Drangur SH 511. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þarna leggur Arnarnúpur ÞH 272 upp frá Húsavík en heimahöfn hans var Raufarhöfn, gerður út af Jökli hf. þar í bæ. Upphaflega Sölvi Bjarnason BA 65, smíðaður á Akranesi fyrir Tálkna hf. á Tálknafirði, afhentur í marsmánuði 1980. Sölvi Bjarnason, sem var 405 brl. … Halda áfram að lesa Arnarnúpur ÞH 272
Tjaldur II SH 370
2159. Tjaldur II SH 370. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Línuskipið Tjaldur II SH 370 frá Rifi liggur hér við bryggju í Reykjavík um árið. Skipið var smíðað í Noregi fyrir KG fiskverkun á Rifi árið 1992. Líkt og systurskipið Tjaldur SH 270. Tjaldur II var seldur til Noregs árið 1987 þar sem hann fékk nafnið Kamaro SF-8-S … Halda áfram að lesa Tjaldur II SH 370
Keilir
2946. Keilir. Ljósmynd Þorsteinn Eyfjörð Friðriksson 2023. Þessa flottu mynd af olíuskipinu Keili tók Þorsteinn Eyfjörð skipverji á Hákoni EA 148 í vikunni þegar Keilir kom til Vestmannaeyja. Keilir er í eigu Olíudreifingar og var míðaður hjá Akdeniz skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Hann er 496 brúttótonn að stærð og kom til landsins í febrúarmánuði árið 2019. … Halda áfram að lesa Keilir
Guðrún Þorkelsdóttir SU 211
2944. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 ex Qavak GR 2 1. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2023. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 kemur svona fagurblá til Vestmannaeyja í gær en myndina tók Tryggvi Sigurðsson. Guðrún Þorkelsdóttir ehf. keypti skipið haustið 2017 en það hét áður Qavak GR 2 1 og var í eigu dótturfélags Brims á Grænlandi. Upphaflega hét … Halda áfram að lesa Guðrún Þorkelsdóttir SU 211
Hákon að dæla og Þrándur í Götu fyrir stafni
Loðnu dælt um borð í Hákon EA 148 og Þarándur í Götu fyrir stafni. Ljósmynd Þorsteinn Eyfjörð Friðriksson 2023. Fékk þessa mynd senda rétt í þessu en hún var tekin um borð í loðnuskipinu Hákoni EA 148 frá Grenivík. Kallarnir fengu 300 tonna kast af góðri loðnu, 70% kerling og hrognafyllingin 19% sem ætti að … Halda áfram að lesa Hákon að dæla og Þrándur í Götu fyrir stafni
Hoffell SU 80
3035. Hoffell SU 80 ex Asbjörn HG 265. Ljósmynd Þorsteinn Eyfjörð Friðriksson 2023. Hoffellið frá Fáskrúðsfirði þiggur hér ein 200 tonn af loðnu úr nótinni hjá Hákoni EA 148. Myndina tók Þorsteinn Eyfjörð nú síðdegis. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you … Halda áfram að lesa Hoffell SU 80
Halldór Sigurðsson ÍS 14
1440. Halldór Sigurðsson ÍS 14 ex Siggi Sveins ÍS 29. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Halldór Sigurðsson ÍS 14 hét upphaflega Sólfaxi SU 12 og var smíðaður á Fáskrúðsfirði árið 1975. Hann var seldur til Akureyrar árið 1977 og hét þar Sólfaxi EA 75. Báturinn, sem er 27 brl. að stærð, fékk nafnið Halldór Sigurðsson ÍS 14 … Halda áfram að lesa Halldór Sigurðsson ÍS 14









