Sigfús B ÍS 401

6794. Sigfús B ÍS 401 ex Æsa GK 115. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Strandveiðibáturinn Vigfús B ÍS 401 kemur hér að landi á Suðureyri í byrjun mánaðarins en það er hans heimahöfn. Vigfús B hét upphaflega Leon HF 83 og var smíðaður hjá Bátsmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1986. Árið 1990 fékk báturinn nafnið Æsa … Halda áfram að lesa Sigfús B ÍS 401 →

Ísborg BA 477

498. Ísborg BA 477 ex Ísborg EA 159. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1993. Rækjubáturinn Ísborg BA 477 frá Patreksfirði kemur hér til hafnar á Húsavík sumarið 1993. Báturinn, sem var 58 brl. að stærð, hét upphaflega Gullþórir VE 39 og var smíðaður í Svíþjóð 1958 fyrir Helga Benediktsson útgerðarmann í Vestmannaeyjum. Árið 1964 var Gullþórir seldur … Halda áfram að lesa Ísborg BA 477 →

Margrét ÍS 202

7386. Margrét ÍS 202 ex Unnur ÞH 405. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Margrét ÍS 202 hét upphaflega Snæberg RE 195 og var báturinn smíðaður hjá Bátagerðinni Samtak árið 1995. Árið 1997 fékk báturinn nafnið Unnur ÁR 7 og árið 2003 Unnur ÞH 405 með heimahöfn á Húsavík. Báturinn hefur frá árinu 2005 borið nafnið Margrét … Halda áfram að lesa Margrét ÍS 202 →

Smyrill ÞH 57

7393. Smyrill ÞH 57 ex Kalli Elínar ÍS 149. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Strandveiðibáturinn Smyrill ÞH 57 er hér á siglingu við Húsavík í hádeginu en það var tekinn myndarúntur eftir löndun. Báturinn var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 1994 og hét upphaflega Kári II SH 219 með heimahöfn á Rifi. Árið 2017 var báturinn … Halda áfram að lesa Smyrill ÞH 57 →

Máni ÍS 87

5183. Máni ÍS 87 ex Máni SU 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Strandveiðibáturinn Máni ÍS 87 kemur hér úr róðri í byrjun mánaðarins en hann er gerður út frá Suðureyri við Súgandafjörð. Máni hét upphaflega Björgin GK 69 og var báturinn smíðaður hjá Bátasmíðastöð Jóns Ö. Jónassonar í Reykjavík árið 1975. Báturinn var í upphafi … Halda áfram að lesa Máni ÍS 87 →

Amadea á Skjálfanda

IMO 8913162. Amadea ex Asuka. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Skemmtiferðaskipið Amadea kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarði. Skipið var smíðað í Japan árið 1991 og hét áður Asuka en hefur borið nafnið Amadea frá árinu 2006. Amadea, sem er með heimahöfn í Nassau á Bahamaeyjum, er 29,008 GT að stærð. Lengd skipsins … Halda áfram að lesa Amadea á Skjálfanda →

Náttfari í hvalaskoðun

993. Náttfari í hvalaskoðun. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Norðursiglingarbáturinn Náttfari er hér í hvalaskoðun skammt undan Húsavíkurhöfða á dögunum. Náttfari var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1965 og hét upphaflega Þróttur SH 4.  Þróttur, sem var fyrsti báturinn sem Skipavík smíðaði, hét ýmsum nöfnum í gegnum tíðina en Norðursigling keypti bátinn árið 1998. Þá … Halda áfram að lesa Náttfari í hvalaskoðun →