
Aletta ÍS 38 hét upphaflega Glaður ÍS 421 og var smíðaður árið 2001 hjá Bátastöðinni Knörr ehf. á Akranesi.
Glaður, sem er rúmlega 6 brl. að stærð, var með heimahöfn í Bolungarvík til ársins 2021 en þá var hann seldur á Akranes og fékk nafnið Grótta AK 9.
Frá árinu 2022 hefur báturinn borið nafnið Aletta ÍS 38 með heimahöfn á Suðureyri við Súgandafjörð.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution