Náttfari í hvalaskoðun

993. Náttfari í hvalaskoðun. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Norðursiglingarbáturinn Náttfari er hér í hvalaskoðun skammt undan Húsavíkurhöfða á dögunum.

Náttfari var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1965 og hét upphaflega Þróttur SH 4. 

Þróttur, sem var fyrsti báturinn sem Skipavík smíðaði, hét ýmsum nöfnum í gegnum tíðina en Norðursigling keypti bátinn árið 1998. Þá hafði hann legið um árabil í reiðuleysi austur á fjörðum. 

Náttfari hóf síðan hvalaskoðunarsiglingar sumarið 1999. 

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd