Kristján RE 110

1000. Kristján RE 110 ex Guðmundur Kristinn SU 404. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1998.

Kristján RE 110 hét upphaflega Seley SU 10 frá Eskifirði og var míðaður fyrir Kristmann Jónsson í Flekkefjørd árið 1966.

Seley SU 10 var seld Græði h/f í Bolungarvík í árslok 1972 og fékk nafnið Flosi ÍS 15. Skipið var endurmælt árið 1973 og mældist þá 229 brl. að stærð. 

Í desember 1976 kaupa Pólarsíld h/f á Fáskrúðsfirði og Magnús Þorvaldsson á Stöðvarfirði Flosa ÍS 15 og nefna Guðmund Kristinn SU 404. 1979 var skráður eigandi Pólarsíld h/f á Fáskrúðsfirði. (Heimild Íslensk skip)

Guðmundur Kristinn SU 404 var gerður út frá Fáskrúðsfirði eitthvað fram yfir 1990. Eftir að hafa legið í Reykjavík um tíma fékk hann nafnið Kristján RE 110 árið 1998 og fljótlega eftir það sitt síðasta nafn á Íslenskri skipaskrá, Eldhamar GK 13

Eldhamar GK 13 var seldur til Króatíu árið 2007 þar sem hann fékk nafnið Bibe og er notaður í ferðaþjónustu.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd