Smyrill ÞH 57

7393. Smyrill ÞH 57 ex Kalli Elínar ÍS 149. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Strandveiðibáturinn Smyrill ÞH 57 er hér á siglingu við Húsavík í hádeginu en það var tekinn myndarúntur eftir löndun.

Báturinn var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 1994 og hét upphaflega Kári II SH 219 með heimahöfn á Rifi.

Árið 2017 var báturinn seldur til Þingeyrar við Dýrafjörð þar sem hann fékk nafnið Kalli Elínar ÍS 149.

Það var svo í lok árs 2024 sem Fiskisker ehf. keypti bátinn til Húsavíkur þar sem hann fékk nafnið Smyrill ÞH 57.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd